Gísli setti stoðsendingarmet Anton Ingi Leifsson skrifar 5. maí 2018 23:15 Gísli í leik með FH fyrr í vetur en þessi ungi piltur hefur verið algjörlega magnaður. vísir/eyþór
Gísli Þorgeir Kristjánsson var algjörlega magnaður er FH vann þriggja marka sigur, 41-38, á Selfoss í framlengdum leik og tryggði sér þar með oddaleik í rimmu liðanna um laust sæti í úrslitum Olís-deildarinnar. FH var tveimur mörkum undir er um mínúta var eftir af leiknum en snéri við taflinu og náðu að jafna. Í framlengingunni voru svo heimamenn sterkari og unnu að lokum. Gísli Þorgeir Kristjánsson dró FH-liðið á herðum sér oft á tíðum í leiknum en hann endaði með að skora átta mörk. Það var ekki eina sem hann var að gera. Hann setti einnig met í gagnagrunni HBStatz því enginn hefur gefið jafn margar stoðsendingar og Gísli í kvöld en HBStatz hefur tekið saman tölfræði úr öllum leikjum Olís-deildarinnar í vetur. Gísli gerði sér lítið fyrir og gaf fjórtán stoðsendingar auk þess að skapa þrjú önnur færi sem bjuggu ekki til mark. Fjórtán stoðsendingar er met í einum og sama leiknum. FH og Selfoss þurfa því að mætast á nýjan leik á miðvikudaginn í hreinum úrslitaleik hvort liðið mætir ÍBV í úrslitaleiknum. Gísli yfirgefur FH í sumar og gengur í raðir Kiel.Skoða má tölfræðina úr leiknum hér.Rólegur Gísli Þorgeir 14 stoðsendingar! Met hjá HBStatz í einum leik#handbolti #olisdeildin @Seinnibylgjan @FH_Handbolti— HBStatz (@HBSstatz) May 5, 2018
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira