Afkoma fyrsta ársfjórðungs undir væntingum hjá Arion banka Sylvía Hall skrifar 2. maí 2018 18:40 Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. Vísir/Arion banki
Hagnaður samstæðu Arion banka á fyrstu þremur mánuðum ársins 2018 nam 1,9 milljörðum króna samanborið við 3,4 milljarða króna á sama tímabili 2017. Arðsemi eigin fjár var 3,6% samanborið við 6,3% fyrir sama tímabil árið 2017. Heildareignir námu rúmlega 1.131 milljörðum króna í lok mars 2018 samanborið við 1.147,8 milljarða króna í árslok 2017 og eigið fé hluthafa bankans nam 204,1 milljörðum króna, samanborið við 225,6 milljarða króna í árslok 2017. Eiginfjárhlutfall bankans var 23,6% í lok mars en var 24,0% í árslok 2017. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1 nam 23,6% og var óbreytt frá árslokum 2017. Ánægja viðskiptavina eykst með þægilegri bankaþjónustu Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir afkomu fyrsta ársfjórðungsins aðeins undir væntingum. Hann segir þó fjárhagslegan styrk bankans vera áfram góðan eins og eiginfjárhlutfall gefur til kynna. „Arion banki hefur markað sér nokkra sérstöðu á íslenskum fjármálamarkaði með því að kynna til leiks fjölbreyttar og spennandi stafrænar nýjungar á sviði fjármálaþjónustu. Markmið okkar er að gera þjónustu okkar eins einfalda og þægilega fyrir okkar viðskiptavini og við frekast getum.“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri. „Við kynntum á fyrsta ársfjórðungi meðal annars ný stafræn lánaferli fyrir skammtímalán og bílalán. Einnig þægilegar leiðir til að dreifa greiðslum á kreditkort og stofna sparnaðarreikninga. Við sjáum að með þægilegri bankaþjónustu eykst ánægja okkar viðskiptavina á sama tíma og við uppskerum aukna skilvirkni í okkar starfsemi. Nú er það svo að 96% snertinga okkar við viðskiptavini fara fram í gegnum stafrænar leiðir.“
Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Fleiri fréttir 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Sjá meira