Nýtur lífsins í Sólarfylkinu Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 13. maí 2018 13:00 Elva Agnarsdóttir (t.v.) ásamt vinkonu sinni Svanhvítu Birtu Guðmundsdóttur. Þær stunda báðar skiptinám í Brisbane í Ástralíu þar sem sólin skín og dýralífið er fjölbreytt. Aðsend mynd
Stöðug veðurblíða, kóngulær, fjölbreytt dýralíf og vingjarnlegir heimamenn eru meðal þeirra þátta sem einkenna dvöl Elvu Agnarsdóttur í Brisbane í Ástralíu þar sem hún stundar skiptinám við Queensland University of Technology (QUT) Elva, sem stundar nám í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík (HR), hefur lengi átt sér þann draum að heimsækja Ástralíu, ekki síst út af fjölbreyttu dýralífi. Þegar HR bauðst skólavist fyrir tvo nemendur í skiptinámi við QUT stukku Elva og vinkona hennar, Svanhvít Birta Guðmundsdóttir, til og dvelja nú í góðu yfirlæti í Sólarfylkinu eins og Queensland er gjarnan kallað meðal heimamanna. Elva segist kunna virkilega vel við sig í QUT sem er að hennar sögn risastór skóli. „Ég sé aldrei sömu andlitin og villist enn innan skólalóðarinnar. Skólinn skiptist í tvö stór svæði og gengur strætó á milli þeirra. Mín megin eru margar skólabyggingar og m.a. rúmlega 20 veitingastaðir, læknamiðstöð, apótek, búð, leikskóli, stór líkamsræktarstöð með sundlaug, bókabúð, bar og nokkur söfn.“Svanhvít og Elva hafa verið duglegar að ferðast og skoða Ástralíu. Eftir lokaprófin stefna þær á frekari ferðalög.Enginn spyr í tíma Á þessari önn tekur Elva þrjá áfanga sem fara upp í val í verkfræðinámi hennar í HR. „Fögin heita Data Analysis, Economics og Global Business. Náminu er skipt upp í tveggja klst. fyrirlestra, sem eru einu sinni í viku, og dæmatíma sem eru líka vikulega. Fyrirlestrarnir eru mjög fjölmennir og eru t.d. 1.800 nemendur með mér í hagfræði. Hér er ekki verið að rétta upp hönd í tíma og spyrja kennarana spurninga eins og á Íslandi heldur er það bannað.“ Dæmatímarnir eru öllu fámennari og mikið lagt upp úr því að nemendur tali saman og tjái sig um námsefnið segir Elva. „Allt námið og verkefni eru miklu skýrar sett fram en heima og allt námsefni fer á netið svo oft getur verið þægilegra að læra heima. Hérna er verkefnavinna stór hluti námsins og gilda þau oft mikið af lokaeinkunn. Ástralar byrjar fyrr í háskóla en Íslendingar og mér finnst flestir í kringum mig vera um 17 ára aldurinn á meðan fólk á mínum aldri er margt búið að klára mastersnám sitt hér.“ Skóladagarnir eru mjög stuttir hjá Elvu og það er frí á mánudögum og fimmtudögum. „Það er örsjaldan heimavinna og þá aðeins ef það eru stór verkefni fram undan, sem er venjulega einu sinni eða tvisvar yfir önnina í hverjum áfanga svo að frítíminn er mjög mikill. Námið gengur vel hjá mér og það er alltaf jafn góð tilfinning að fara í stuttbuxum í skólann.“Ferðaðist um páskana Elva og Svanhvít búa saman í 24 hæða byggingu rétt hjá skólanum og deila íbúðinni með tveimur stelpum frá Asíu. „Hér búa bara nemendur og ég er því búin að eignast fullt af vinum sem ég eyði tíma með flest kvöld vikunnar. Þetta eru krakkarnir frá Ástralíu, Bretlandi og fleiri löndum Evrópu.“ Fyrir vikið er nóg að gera utan skólans. „Ég er m.a. byrjuð að keppa í íþrótt sem er kölluð „netball“ en ég hafði aldrei heyrt um hana áður. Henni svipar til körfubolta nema það má ekki hlaupa með boltann. Ég fékk líka vinnu hjá jógastúdíói hérna rétt hjá og kenni þar einn tíma á viku. Einnig finnst mér rosalega gaman að hlaupa úti, kíkja í jóga, taka langa göngutúra, labba í görðunum og fara á markaði til að kaupa ávexti og grænmeti frá bændum.“ Síðustu páskar nýttust vel til ferðalaga þar sem tveggja vikna frí var í skólanum vegna Samveldisleikanna sem voru haldnir í Queensland þetta árið. „Ég kíkti m.a. til Sydney og skoðaði Blue Mountains, Melbourne og Cairns þar sem ég snorklaði í Kóralrifinu mikla (Great Barrier Reef). Landið er allt mjög fallegt og ég ætla að ferðast meira um eftir lokaprófin sem eru í júní. Um helgar hef ég kíkt með vinum niður á Gold Coast og Sunshine Coast þar sem við höfum ekki alvöru strönd hér í Brisbane.“Elva er virkilega hrifin af Brisbane og segir borgina yndislega í alla staði.Vinalegt fólk Elva er virkilega hrifin af Brisbane og segir borgina yndislega í alla staði. „Mjög stór hluti íbúa er ættaður frá Asíu sem þýðir m.a. að hér er mikill fjöldi sushi-staða og annarra asískra veitingastaða. Borgin er mjög hrein og veðrið er eiginlega alltaf gott. Núna er kominn vetur svo það er að kólna en hitinn er enn þá vel yfir 20 gráðum.“ Hún segir Ástrala miklu vinalegri og hjálplegri en Íslendinga. „Hér byrjar fólk að spjalla upp úr þurru úti á götu og í lyftum og maður fær oft að heyra alla ævisöguna á nokkrum mínútum. Kaffihúsamenningin hér er miklu útbreiddari og algengt að sjá fólk mætt á kaffihús vel fyrir kl. 7 á morgnana í morgunmat enda er sólin komin upp um kl. 6. Íbúar borgarinnar eru líka duglegir að hreyfa sig. Ég reyni t.d. að mæta kl. 7 á hverjum laugardagsmorgni út í almenningsgarð þar sem ég hleyp 5 km með 500 hlaupurum.“Kóngulær venjast Áður en Elva kom til Ástralíu hafði hún heyrt margar sögur um snáka þar í landi. „Margir heima virðast halda að hér séu snákar út um allt en ég hef ekki mikið rekist á þá. Hins vegar eru kóngulær alls staðar og finnst mér núna orðið eðlilegt að rekast á stórar kóngulær hvar sem er. Fyrir utan borgina hef ég rekist á villt dýr, m.a. kengúrur, snáka, krókódílsunga og kóalabirni.“ Eftir útskrift frá Háskólanum í Reykjavík segist Elva stefna í mastersnám erlendis. „Það sem fjármálaverkfræðin býður m.a. upp á eru störf innan fjárfestingabanka, vogunarsjóða og lífeyris- og fjárfestingarsjóða. Planið mitt er samt aðeins öðruvísi – ég stefni á að opna jógastöð á Íslandi og ef það gengur vel þá líka litla líkamsræktarstöð.“
Birtist í Fréttablaðinu Ferðalög Mest lesið Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Lífið Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Lífið „Það er galið að sjá fimm manna fjölskyldu sitja saman en öll í símanum“ Áskorun Krakkatían: Nótur, bankar og geitur Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Lífið Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Lífið Fleiri fréttir Beverly Hills Cop-stjarnan John Ashton er látinn Elti drauminn og flutti um borð í húsbíl Mamma byrjuð að undirbúa stúdentsveislu þegar fregn barst af falli Krakkatían: Nótur, bankar og geitur „Það er einhver sjarmi yfir París sem er ekki annarsstaðar“ Gaf langömmu tattú í afmælisgjöf Fréttatía vikunnar: Þingframboð, þýfi og brúarframkvæmdir „Þegar menn vaða svona í fjölskylduna mína þá tek ég boxhanskana af“ Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Sjá meira