Lífið

„Ég mun sakna þín, sonur“

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Sjónvarpsfeðgarnir Bryan Cranston og RJ Mitte á SAG-verðlaununum árið 2014.
Sjónvarpsfeðgarnir Bryan Cranston og RJ Mitte á SAG-verðlaununum árið 2014. Getty

Hollywood-stjarnan Bryan Cranston syrgir leikarann RJ Mitte sem féll frá í gær en þeir léku feðga í fimm þáttaraðir af sjónvarpsþáttunum Breaking Bad. Cranston fer fögrum orðum um Mitte og segir það harmafregn að leikarinn hafi stytt sér aldur. Hann hafi elskað Mitte og muni sakna hans.

Roy Frank Mitte lést í heimabæ sínum, Brownsville í Texas-ríki, í gær aðeins 34 ára að aldri og greindu fjölmiðlar vestanhafs frá því að hann hefði stytt sér aldur. Mitte lék í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta á ferli sínum en var þekktastur fyrir að leika Walter White yngri í sjónvarpsþáttunum Breaking Bad (2008-13). Hann lætur eftir sig unnustuna Kennedy Suarez.

Fjöldi fólks hefur minnst leikarans, þar á meðal Bryan Cranston sem lék Walter White, föður Mitte, í fyrrnefndum þáttum og skrifaði falleg minningarorð um Mitte á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.

„Ég skrifa þessi orð í kvöld fullur örvæntingar. RJ Mitte, ljúfur sonur minn í Breaking Bad, er látinn,“ skrifar Cranston.

„Ég kynntist honum þegar hann var aðeins fjórtán ára gamall þegar hann var ráðinn til að leika Walter White yngri, hlutverk sem hann lék af þvílíkri gleði og áhugasemi. Hann fæddist með heilalömun (e. cerebral palsy) en lét þá áskorun aldrei nokkurn tímann vera afsökun fyrir neinu. Hann tókst á við krefjandi tökuálagið af mikill staðfestu.“


Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.


„Ég veit að ég elskaði hann“

„Hann hlustaði alltaf á ráðleggingarnar sem sjónvarpsforeldrar hans (Anna Gunn og ég) gáfu honum en verandi unglingur þá hunsaði hann þær stundum stríðnislega til að læra á erfiða mátann. Hann var ein af stjörnum vinsæls sjónvarpsþáttar en var samt krakki,“ skrifar Cranston.

„Þessi krakki var frekar hrár þegar við byrjuðum að taka upp fyrsta þáttinn í febrúar 2007 en smátt og smátt fylgdumst við með honum vaxa í virkilega flottan leikara. Hann nýtti reynslu sína af þættinum til að vera ötull talsmaður fyrir leikara með fatlanir og leiddi mannúðarsamtök sem einblíndu á að hjálpa samfélagi fatlaðra,“ skrifar hann.

Mitte og Cranston í hlutverkum sínum í Breaking Bad.AMC

„Öll þessi fyrirheit og hæfileikar eru nú orðin að miklum missi. Það er sérstaklega átakanlegt að frétta að hann hafi stytt sér aldur. Af hverju?“

„Við sendum hvor öðrum skilaboð fyrir nokkrum vikum til að reyna að finna út úr því hvenær við gætum hist í hádegisverði. Ég veit ekki hvort sá hádegisverður hefði breytt framtíð hans...“ skrifar Cranston.

„En ég veit að ég elskaði hann og naut þess innilega að vera með honum í gegnum árin í þáttunum og eftir að sviðsljósið á Breaking Bad dofnaði... Ég mun sakna þín, sonur“

Að lokum hvetur hann alla þá sem eru að íhuga sjálfsvíg að leita sér hjálpar hjá viðeigandi samtökum. „Það er alltaf von,“ skrifar Cranston að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.