Gera alvarlegar athugasemdir við samantekt Samtaka atvinnulífsins Sylvía Hall skrifar 10. maí 2018 16:00 Hafnarfjarðarbær skorar lægst í samanburði á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna. Vísir/Daníel
Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, eru ósáttir við samanburð Samtaka atvinnulífsins þar sem rekstur tólf stærstu sveitarfélaga landsins er tekinn fyrir. Þeir segja samantektina ekki gefa rétta mynd af stöðu sveitarfélaganna. Í samantektinni er sveitarfélögunum gefin stig eftir innbyrðis stöðu í hverjum samanburði. Það sveitarfélag sem stendur best í hverjum samanburði fær tólf stig og svo framvegis. Í yfirlýsingu frá bæjarstjórum sveitarfélaganna tveggja segir að ekki þurfi að vera mikill munur milli stiga, en stigagjöfin skipti miklu máli þegar niðurstaðan sé reiknuð út.Segja samantektina ná of langt aftur Bæjarstjórarnir benda á að fjórir mælikvarðar þeirra níu sem notaðir eru til að skoða rekstrarframmistöðu tengist skuldum og því komi þau sveitarfélög sem skulda mest verst út. Þeir setja spurningarmerki við hvort réttlætanlegt sé að skuldir fortíðar vegi svo þungt þegar rekstrarframmistaða sé skoðuð í dag. Reykjanesbær fær samtals fjögur stig fyrir mælikvarða tengda skuldum, en athygli vekur að sé sveitarfélögunum raðað upp án skuldatengdum mælikvörðum breytist röðun þeirra töluvert. Reykjanesbær komi best út þegar einungis eru teknir saman mælikvarðar tengdir rekstri. Þeir segja niðurstöðuna gefa villandi mynd af núverandi stöðu. Þegar skoðuð eru útgjöld á hvern íbúa er notast við meðaltal frá árinu 2002 og mikið vatn hafi runnið til sjávar hjá sveitarfélögunum frá árinu 2002. Staðan sé allt önnur nú og því segi samantektin lítið til um hver rekstrarstaða sveitarfélaganna sé í dag.Gagnrýna staðhæfingu um fylgni milli fjárhagsstöðu og skattlagningar Í samantekt SA segir að hagkvæmast sé að búa í vel reknum sveitarfélögum ef skoðað sé fylgni milli fjárhagsstöðu og skattlagningar, og að góður rekstur skili sér í lægri skattheimtu á íbúa. Bæjarstjórarnir tveir draga þessa staðhæfingu í efa og segja nauðsynlegt að fara dýpra í málið áður en slíkt sé sett fram. Skattstofninn skipti miklu máli og vegi þungt þegar álagningarhlutfall sé skoðað í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Því gefi þessi fullyrðing ekki rétta mynd af málunum.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira