Betri kjörsókn í Reykjavík en lakari annars staðar miðað við síðustu kosningar Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. maí 2018 11:47 Af kjörstað. vísir/valli
Kjörsókn í Kópavogi, Hafnarfirði, Reykjanesbæ var lakari klukkan 11 í morgun en á sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosingum árið 2014. Kjörsóknin var hins vegar betri í Reykjavík og á Akureyri en miðað við sama tíma 2014. Kjörsókn í Reykjavík var 4,69 prósent klukkan 11 í morgun en á sama tíma í sveitarstjórnarkosningum árið 2014 höfðu 4,27 prósent kosið. Kjörsókn er því örlítið betri í ár en í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Í Kópavogi höfðu 3,8 prósent kosið klukkan 11 en kjörsókn var 4,2 prósent á sama tíma í síðustu kosningum. Í Hafnarfirði var kjörsókn 3,89 prósent klukkan 11 miðað við 4,9 prósent í síðustu kosningum og í Reykjanesbæ höfðu 2,98 prósent kosið miðað við 3,79 prósent síðustu kosninga. Á Akureyri var kjörsókn 5,83 prósent klukkan 11, örlítið betri en í síðustu sveitarstjórnarkosningum en á sama tíma árið 2014 höfðu 5,77 prósent greitt atkvæði. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, sagði í morgun að kosningarnar yrðu spennandi og þá gætu úrslitin ráðist á kjörsókn. „Þannig að nú hvet ég alla sem vettlingi geta valdið til þess að mæta og kjósa og styðja við jákvæða og spennandi þróun borgarinnar,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og oddviti Samfylkingarinnar.
Kosningar 2018 Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Fleiri fréttir Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sjá meira