„Fyrsta vínylplatan mín, The Hand of Glory EP, kom út í mars á bbbbbb records, íslensku raftónlistarútgáfunni hans Bjarka. Einnig gaf ég nýlega út Stationz Ov Tha Puss, safnkassettu á Ladyboy Records. Ég hef einnig verið að pródúsera lög fyrir ýmsa listamenn hér á landi og erlendis auk þess sem ég hef farið í tónleikaferðalög.“
Tónlistin er í fyrirrúmi en utan hennar hefur hann sinnt ýmsu öðru undanfarin ár. „Ég er mest að einbeita mér að tónlist þessa dagana en ég hef líka starfað mikið í blaðamennsku, seinast fyrir Indie Magazine í Berlín og nú fyrir útvarpsþáttinn Lestina á Rás 1. Undanfarin tvö ár hef ég búið í Berlín en flutti heim í bili síðustu jól.“

„Stóri bróðir minn lýsti fatasmekknum mínum sem „flóamarkaðsgeðsýki“ eða „thrift store psychosis“. Mér finnst það smá viðeigandi. Ég á mér ekki beint tískufyrirmyndir heldur reyni bara að vera ég sjálfur. Þegar ég var yngri var ég hins vegar pönkari og sótti mikinn innblástur þaðan, fór t.d. oft í BYKO til að kaupa keðjur. Annars finnst mér klæðaburður minn ekki hafa þróast mikið undanfarin ár. Þó er ég kannski almennt ekki í alveg jafn villtum og áberandi klæðnaði og þegar ég var yngri. Meira smekklegur í dag.“
Hvar kaupir þú helst föt?
Ef ég kaupi eitthvað nýtt þá er það vanalega á flóamörkuðum eða í gegnum netið.
Hvaða litir eru í uppáhaldi?
Ef ég ætti að nefna einn lit væri það fjólublár. Ég, mamma og bróðir minn erum þó vanalega klædd í svart, smá eins og Addams-fjölskyldan.
Hvernig fylgist þú helst með tískunni?
Ég er voða lítið að fylgjast grannt með nýrri tísku en þekkingin smýgur smá í gegnum Twitter.
Áttu minningar um gömul tískuslys?
Þegar ég var tólf ára pönkari keypti ég fjólubláan leðurjakka og málaði „DVERGAKLÁM“ á bakið. Veit ekki alveg með þessa týpu í dag.

Það er græna úlpan sem ég klæðist á einni myndinni hér. Ég passa enn í hana þótt ég hafi keypt hana fyrir meira en tíu árum síðan.
Áttu einhverjar uppáhaldsverslanir?
Firmament í Berlín er mjög töff og Radd Lounge í Tókýó.
Áttu þér uppáhaldsflík?
Kannski bara Lil Ugly Mane jakkann minn frá Radd Lounge.
Bestu og verstu fatakaupin?
Bestu kaupin voru Jazz Jackrabbit jakki sem ég fann í Hjálpræðishernum sem var greinilega framleiddur þegar leikurinn kom út á sínum tíma. Verstu kaupin voru flest gerð í H&M.
Eyðir þú miklu í föt miðað við jafnaldra þína?
Nei, ég er allt of blankur eins og er.
Notar þú fylgihluti?
Ég elska hringa og keðjur en er samt dálítið gjarn á að týna þeim, því miður.