Sparkaði í höfuð heimilislauss manns Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. júní 2018 06:56 Lögreglan leitar mannsins. Skjáskot
Lögreglan í San Francisco hefur birt upptöku úr öryggismyndavél sem sýnir mann sparka, að því er virðist af tilefnislausu, í höfuð manns sem liggur á einni af hinum fjölmörgu gangstéttum borgarinnar. Birting myndbandsins hefur vakið töluverða reiði vestanhafs, ekki síst vegna þessa að San Francisco er af mörgum talin táknmynd þess vanda sem heimilislausir Bandaríkjamenn standa frammi fyrir. Árásin er sögð enn ein sönnunin fyrir þeim fordómum sem þeir upplifa á hverjum degi. Myndbandið má sjá hér að neðan. Rétt er að taka fram að það kann að valda óhug. Í því sést hvernig maður, íklæddur jakkafötum og svartri húfu, gengur upp að sofandi manni og sparkar tvívegis í höfuð hans. Því næst virðist hann mæla eitthvað til mannsins á gangstéttinni áður en árásarmaðurinn gengur burt. Lögreglan í San Francisco birti myndbandið í gær og biðlar til almennings um upplýsingar sem kunna að varpa ljósi á árásarmanninn. Hún hefur ekki viljað gefa upp frekari upplýsingar um málið og er því ekki vitað hvernig þolendanum heilsast. Árásin er sögð hafa átt sér stað í hinu svokallaða Tenderloin-hverfi borgarinnar, þar sem finna má mörg samtök sem veita heimilislausum íbúum San Francisco aðstoð.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Fleiri fréttir Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Sjá meira