Harkaleg átök Bjössa í World Class og manns með prik ganga á samfélagsmiðlum Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. júní 2018 19:33 Björn segir í samtali við Vísi að engum hafi orðið meint af átökunum. Mynd/Samsett
Myndband af Birni Leifssyni, eiganda líkamsræktarstöðvanna World Class, þar sem hann sést takast nokkuð harkalega á við mann sem vopnaður er priki, hefur komist í nokkra dreifingu á samfélagsmiðlum í dag. Engum varð þó meint af téðum viðskiptum en kalla þurfti á lögreglu vegna atviksins. Björn segir í samtali við Vísi að maðurinn, sem hann glímir við í myndbandinu, hafi verið að æfa með prikinu og hafi auk þess verið margar klukkustundir við æfingar í stöðinni, í annarlegu ástandi. Maðurinn hafi neitað að yfirgefa æfingasalinn í dag þrátt fyrir beiðni Björns þess efnis. „Þetta var grey sem var útúrdópaður og ég gekk upp að honum og spurði hvort hann vildi ekki fara og koma aftur þegar hann væri í betra ástandi en hann neitaði. Hann réðst á mig og við tókum hann svo, leiddum hann út og fengum lögregluna til að taka hann,“ segir Björn. Þá segir hann manninn einnig hafa verið dónalegan við starfsfólk í afgreiðslu stöðvarinnar. Enginn hafi þó slasast í átökunum. „Þetta var mjög saklaust og lögreglan fjarlægði hann af staðnum,“ segir Björn og ítrekar að allt hafi farið vel. Myndbandið, sem nú gengur manna á milli á samfélagsmiðlum, má sjá hér að neðan.
Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Sjá meira