Neyddist til að segja af sér vegna vatnssölufársins Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. júní 2018 07:44 Úr myndbandinu sem deilt var á samfélagsmiðlum. Viðbrögð Ettel, sem hefur verið uppnefnd Permit-Patty (ísl. Leyfis-Lovísa), hafa vakið hörð viðbrögð netverja. Skjáskot/Twitter
Alison Ettel, bandarísk kona sem sem virtist tilkynna vatnssölu átta ára gamallar svartrar stúlku til lögreglu, hefur látið af störfum hjá fyrirtæki sem hún stofnaði, að því er fram kemur í frétt breska dagblaðsins The Guardian. Mikil reiði braust út meðal notenda á samfélagsmiðlum eftir að myndbandi af atvikinu, sem móðir téðrar stúlku tók upp, var deilt á netinu. Í myndbandinu sést Ettel tala í símann, að því er virðist við lögreglu, á grundvelli þess að stúlkan hafi staðið að ólöglegri vatnssölu án tilskilins leyfis frá yfirvöldum í Kaliforníu. Þar eð umrædd stúlka er svört og Ettel hvít hefur atvikið verið sett í samhengi við fordóma og kynþáttaspennu í Bandaríkjunum. Myndbandið fór eins og eldur í sinu um netheima og fljótlega hófu verslanir, sem seldu vörur frá fyrirtæki Ettel, TreatWell Health, að rjúfa öll tengsl við bæði fyrirtækið og Ettel. Í gær var svo tilkynnt um að Ettel hefði sagt sig frá öllum störfum fyrir fyrirtækið og tók afsögn hennar þegar gildi. TreatWell Health framleiðir kannabisvörur fyrir bæði menn og dýr. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að með ákvörðun sinni standi Ettel vörð um hagsmuni fyrirtækisins. Hún lýsti einnig yfir eftirsjá og iðrun vegna atviksins. Ekki fengust upplýsingar um það hvort Ettel verði enn hluti af eigendahóp TreatWell Health.So my little cousin was selling water and didn't have a permit so this lady decided to call the cops on an 8 year old. #PermitPatty pic.twitter.com/SiL61pnAgl— Racist Raj (@_ethiopiangold) June 23, 2018
Bandaríkin Tengdar fréttir Hvítur „hræsnari“ sakaður um kynþáttafordóma í garð átta ára vatnssölukonu Þar eð umrædd stúlka er svört og Ettel hvít hefur atvikið verið sett í samhengi við fordóma og kynþáttaspennu í Bandaríkjunum. 25. júní 2018 10:55 Mest lesið Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Sjá meira
Hvítur „hræsnari“ sakaður um kynþáttafordóma í garð átta ára vatnssölukonu Þar eð umrædd stúlka er svört og Ettel hvít hefur atvikið verið sett í samhengi við fordóma og kynþáttaspennu í Bandaríkjunum. 25. júní 2018 10:55