Frakkar og Danir náðu markmiðum sínum með markalausu jafntefli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2018 15:45 Olivier Giroud og Simon Kjær. Vísir/EPA Frakkland og Danmörk tryggðu sér tvö efstu sætin í C-riðli eftir að hafagert markalaust jafntefli í toppslag riðilsins. Þetta var fyrsta markalausa jafnteflið á HM í Rússlandi. Frakkar vinna riðilinn og mæta liðinu sem endar í öðru sæti í íslenska riðlinum. Danir taka annað sætið og mæta því sigurvegara íslenska riðilsins sem er væntanlega lið Króata. Fyrri hálfleikurinn bauð ekki upp á mikið en seinni hálfleikur var hrein hörmung þar sem hvorugt liðið sýndi mikinn vilja til að skora mark og tryggja sér sigurinn. Í fyrri hálfleiknum bárust fréttir af því að Perú væri komið yfir á móti Ástralíu og því staða Dana orðin enn betri. Eftir að Perú komst í 2-0 þá varð það jafnframt orðið ljóst að Ástralir ætluðu ekkert að blanda sér í baráttuna um annað sætið riðilsins.37 - Denmark vs France was the 37th game to be completed at the 2018 World Cup, but the first to finish 0-0. Ennui. #DEN#FRA#DENFRA#WorldCuppic.twitter.com/LUEtWFv0yB — OptaJoe (@OptaJoe) June 26, 2018 Danir lögðu höfuðáherslu á að verjast, spiluðu aftarlega á vellinum og treystu á skyndisóknir. Danir eru enn taplausir á mótinu en þeir eru ekki búnir að spila skemmtilegan fótbolta á heimsmeistaramótinu. Frakkar voru meira með boltann en sóknarleikur liðsins var einhæfur og hugmyndasnauður. Frakkar vissu að þeir myndu vinna riðilinn næðu þeir í stig og þeir voru ekki að eyða of mikillu orku í leiknum. Síðari hálfleikurinn rann út í sandinn og seinni hluti hans var næstum því líflaus þar sem leikmenn liðanna voru að dútla með boltann. Það dugði lítið þótt óþolinmóðir áhorfendur hafi púað á rólegheitin. HM 2018 í Rússlandi