Fótbolti

Þurftu að biðja Infantino af­sökunar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianni Infantino var sá sem síðast hlær í þessu máli. 
Gianni Infantino var sá sem síðast hlær í þessu máli.  EPA/SHAWN THEW

Breska stórblaðið The Times viðurkennir mistök í frétt sem fjallaði um laun Gianni Infantino, forseta FIFA.

Blaðið greindi nýlega frá því að Infantino hefði fengið aukagreiðslur í laun sem Alþjóðaknattspyrnusambandið (FIFA) hefði ekki sagt frá.  Sky Sports hélt því líka fram að það byggi yfir sömu upplýsingum.

„Þetta er rangt. Það voru engin „aukalaun“. Við biðjum Infantino og FIFA afsökunar,“ skrifar The Times í dálki um leiðréttingar og áréttingar. Einnig er vísað til svissneskra reglna.

„Reglurnar krefjast þess ekki að FIFA tilgreini í ársskýrslu sinni útgjöld og endurgreiðslur sem Infantino hefur fengið, þar sem þær teljast ekki „þóknun“ samkvæmt svissneskum skýrslugjafarkröfum,“ skrifar The Times um afsökunarbeiðnina.

NTB-fréttastofan og fleiri fjölmiðlar fjölluðu um upplýsingar The Times um greiðsluna til Infantino frá HM-félaginu.

„FIFA hafnar alfarið öllum fullyrðingum um að sambandið hafi látið hjá líða að upplýsa um fjárhagsleg málefni eða brotið eigin lög,“ sagði talsmaður FIFA við NTB af því tilefni.

FIFA hefur einnig birt lengri yfirlýsingu á X um afsökunarbeiðnina.

„FIFA fagnar lögmætri og gagnrýninni umfjöllun, en hún veitir ekki frítt spil til að dreifa röngum ásökunum. Þegar umfjöllun er ónákvæm, villandi eða algjörlega röng, eins og í þessu tilviki, mun FIFA áfram svara henni beint og af krafti,“ skrifar sambandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×