Bæði lið voru fyrir leikinn dottin úr keppni. Því skipti leikurinn í raun engu máli þar sem liðin voru bæði á leið heim eftir leikinn. Annað liðið gæti endað með núll stig.
Það var Mohamed Salah, markavélin, sem kom Egyptum yfir á 22. mínútu eftir stoðsendingu frá Abdalla El Said. Abdalla fékk boltann eftir skelfilega sendingu frá miðjumanni Sádana.
Stuttu síðar leit allt út fyrir að staðan yrði 2-0. Mo Salah slapp einn í gegn og vippaði boltanum yfir markvörð Sádana, eins og hann hefur gert svo oft fyrir Liverpool í vetur, en boltinn framhjá markinu.
Fjórum mínútum fyrir leikslok fengu Sádarnir tækifæri til að jafna metin er þeir fengu víti. Fahad Al-Muwallad fór á punktinn en hinn 45 ára gamli Essam El Hadary, markvörður Egypta, varði.
Um leið varð hann elsti markvörðurinn til þess að verja víti á HM en hann varð einnig elsti leikmaðurinn til að spila á HM er hann byrjaði leikinn fyrir Egypta í dag.

Síðari hálfleikurinn fer ekki í sögubækurnar fyrir skemmtilega knattspyrnu. Það sást greinilega að bæði lið voru úr keppni fyrir leikinn og áhugaleysið virtist algjört.
Sigurmarkið kom þó í uppbótartímanum er Sádarnir tryggðu sér sigurinn með marki Salem Al-Dawsari með síðustu spyrnu leiksins. Það var ekki einu sinni tími til þess að taka miðju.
Sádi-Arabía endar því með þrjú stig í riðlinum en Egyptar ekkert. Mikil vonbrigði fyrir þá. Úrúgvæ endaði á toppnum með níu stig en Rússland sex í öðru sætinu.