Mexíkó með fullt hús stiga eftir sigur á Suður-Kóreu Einar Sigurvinsson skrifar 23. júní 2018 17:00 Chicharito skoraði sitt fimmtugasta landsliðsmark fyrir Mexíkó í dag. getty Mexíkó er í góðum málum með fullt hús stiga á toppi F-riðils eftir sigur á Suður-Kóreu í öðrum leik liðanna á HM í Rússlandi. Leiknum lauk með 2-1 sigri Mexíkó sem senda Suður-Kóreu heim að riðlakeppni lokinni með sigrinum. Á 25. mínútu leiksins fékk Mexíkó vítaspyrnu. Andres Guardado setti boltann þá í hönd Hyun-Soo Jang og dómari leiksins dæmdi réttilega vítaspyrnu. Carlos Vela fór á punktinn og skoraði af öryggi. Leikmenn Suður-Kóreu börðust eins og ljón en höfðu fá svör við hættulegum skyndisóknum Mexíkó. Á 66. mínútu komst Mexíkó tveimur mörkum yfir eftir eina slíka. Þar komust þeir þrír á tvo varnarmenn Suður-Kóreu. Hirving Lozano kom boltanum á Chicharito sem á ekki vandræðum með að renna honum fram hjá Hyun-Woo Cho í markinu. Á 93. mínútu náði Heung-Min Son að klóra í bakkann þegar hann minnkaði muninn fyrir Suður-Kóreu með glæsilegu skoti fyrir utan teig, en nær komst Suður-Kórea ekki og lokatölur 2-1 fyrir Mexíkó. Úrslitin þýða að draumur Suður-Kóreu um 16-liða úrslit er úti á meðan Mexíkó gæti fagnað eftir leik Þýskaland og Svíþjóðar í kvöld. Nái Svíþjóð stigum af Þýskalandi eru Mexíkóar öryggir áfram, annars myndi stig í lokaleiknum gegn Svíþjóð gulltryggja liðinu 16-liða úrslit. HM 2018 í Rússlandi
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti