Englendingar voru einfaldlega mun betri aðilinn í leiknum. Svíarnir voru lengi í gang og þeirra hættulegustu færi komu þegar England var komið í 2-0.
England er því komið í undanúrslitin en þar mæta þeir annað hvort Króatíu eða Rússlandi. Þessi lið leika í kvöld en undanúrslitaleikur liðanna er svo á miðvikudaginn.
Eins og áður segir voru Svíarnir lítið að ógna í fyrri hálfleik. Englendingar réðu lögum og lofum á vellinum en náðu ekki að skapa sér mörg hættuleg marktækifæri.
Það kom fáum á óvart að fyrsta markið kom eftir hornspyrnu. Hornspyrna Ashley Young fór beint á kollinn á Harry Maguire sem stangaði boltann í netið. Fyrsta landsliðsmark kappans. Mögnuð stund.

Það var lítið að frétta frá Svíum áfram í upphafi síðari hálfleiks. Það var því verðskuldað að Englendingar tvöfölduðu forystuna með marki frá Dele Alli eftir magnaða sendingu Jesse Lingaard.
Jordan Pickford, markvörður Everton og enska landsliðsins, var vel á verði í markinu en hann varði í tvígang afar vel. Það voru hættulegustu færi Svíaa sem sköpuðu sér þrjú ágæt færi í síðari hálfleik.
Verðskuldaður 2-0 sigur Englendinga sem eru komnir í undanúrslitin í fyrsta skipti síðan 1900 en 1966 urðu þeir síðast heimsmeistarar. Í dag héldu þeir þó hreinu í fyrsta skipti í mótinu. Boðar gott.