Föst í bifreið sinni í viku eftir veltu Andri Eysteinsson skrifar 15. júlí 2018 10:31 Bíll konunnar hafði endað í fjöruborðinu og var hálfvegis í kafi þegar göngumenn gengu fram á hann. Vísir/EPA
Bandarískri konu á þrítugsaldri sem hafði verið saknað var bjargað heilli viku eftir að hún velti bíl sínum niður af kletti á kyrrahafsströnd Bandaríkjanna, BBC greinir frá. Hin 23 ára gamla Angela Hernandez var á leið frá heimili sínu í Portland í Oregon til Los Angeles í Kalíforníu til að heimsækja systur sína. Hernandez var á leið um Big Sur svæðið milli San Francisco og Los Angeles þegar hún neyddist til að sveigja fram hjá dýri á veginum. Við það missti hún stjórn á bílnum sem valt og féll niður 60 metra háan klett og niður að sjó. Talsmaður Lögreglunnar í Monterey sýslu, John Thornburg, segir að Angela Hernandez sé heppin að vera á lífi. „Það er venjulega annaðhvort fallið eða hafið sem ná þeim, hún var heppin að lifa bæði af“ sagði Thornburg. Hernandez fannst á föstudaginn þegar að göngumenn sáu bíl hennar hálfvegis í hafinu. Hernandez var með meðvitund en virðist hafa fengið heilahristing við fallið. Hernandez segist hafa komist af með því að drekka vatn sem lak úr vatnskassa bifreiðarinnar.
Erlent Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira