ÍR vann fallslaginn á Grenivík Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. júlí 2018 18:02 Andri Jónasson og Helgi Freyr Þorsteinsson spiluðu allan leikinn fyrir ÍR í dag. vísir
ÍR sótti mikilvægan sigur á Grenivík í fallbaráttunni í Inkasso deild karla. Þór hélt í við liðin í toppbaráttunni með sigur á Leikni. Liðin tvö sem sitja í fallsæti deildarinnar, ÍR og Magni, mættust á Grenivík í dag. Eitt stig skildi liðin að fyrir leikinn, ÍR með 7 og Magni 6. Nóg var af fjöri í fyrri hálfleik en hvorugt lið náði að setja mark á leikinn. Fyrsta markið kom ekki fyrr en á 85. mínútu þegar ÍR fékk vítaspyrnu og Máni Austmann Hilmarsson skoraði örugglega á spyrnunni. Heimamenn voru orðnir einum manni færri eftir að Ívar Örn Árnason var rekinn út af á 60. mínútu þegar hann fékk sitt annað gula spjald. Heimamenn áttu færi til þess að jafna leikinn undir lokin en ÍR-ingar héldu út og náðu mikilvægum stigum í botnbaráttunni. Þeir eru nú jafnir Njarðvík að stigum, en eru áfram í fallsæti á verri markatölu. Hitt liðið úr Breiðholtinu, Leiknir, var á heimavelli þegar þeir mættu Þór frá Akureyri. Gestirnir voru líklegri í fyrri hálfleik en það var markalaust þegar flautað var til leikhlés. Bæði lið áttu sín færi í seinni hálfleik en það voru Þórsarar sem skoruðu fyrsta markið, Ignacio Echevarria skoraði eftir undirbúning Alvaro Montejo á 84. mínútu. Það reyndist verða eina mark leiksins, 0-1 sigur Þórs sem heldur stöðu sinni í fjórða sæti en fer í 23 stig, líkt og ÍA og Víkingur Ó. í 2. og 3. sæti. HK er með tveggja stiga forystu á toppnum. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira