86 prósent segja að Erik Hamrén sé ekki rétti kosturinn fyrir Ísland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2018 13:30 Erik Hamrén. Vísir/Getty
Aftonbladet í Svíþjóð setti af stað könnun hjá sér í dag þar sem blaðið spurði lesendur sína á netinu hvort það væri rétt hjá Knattspyrnusambandi Íslands að ráða Erik Hamrén sem landsliðsþjálfara Íslands. Könnunin kom undir frétt af því að Erik Hamrén væri hættur hjá Mamelodi Sundowns í Suður-Afríku og í framhaldinu á leiðinni til Íslands. Lesendur gátu valið á milli þess að að Erik Hamrén sé rétti kosturinn fyrir Ísland eða að hann sé ekki rétti kosturinn fyrir Ísland. Þegar Vísir skoðaði síðast stöðuna í þessari skoðunarkönnun sænska stórblaðsins þá höfðu yfir 14 þúsund manns greitt atkvæði og niðurstaðan er afgerandi. 86 prósent lesenda Aftonbladet segja að Erik Hamrén sé ekki rétti kosturinn fyrir Ísland. Hamrén fær því aðeins fjórtán prósent stuðning frá löndum sínum. Það er ljóst á þessu að Erik Hamrén er ekki vinsæll í Svíþjóð eftir sjö ára starf sitt sem landsliðsþjálfari. Hamrén þjálfaði sænska landsliðið frá 2009 til 2016. Hann kom liðinu inn á tvö Evrópumót og síðustu leikir hans með liðið voru á EM í Frakklandi sumarið 2016.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Logi frá FH til Króatíu Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Sjá meira