Stútar og próflausir á víð og dreif um höfuðborgarsvæðið Samúel Karl Ólason skrifar 4. ágúst 2018 09:50 Í miðbænum voru afskipti haft af fimm ökumönnum. Þar af voru tveir grunaðir um ölvun og þrír um að vera undir áhrifum fíkniefna. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt vegna aðila sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Í miðbænum voru afskipti haft af fimm ökumönnum. Þar af voru tveir grunaðir um ölvun og þrír um að vera undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra hafði aldrei öðlast ökuréttindi og einn hafði ítrekað verið sviptur ökuréttindum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar Lögregluþjónar frá Stöð tvö, sem sér um Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, stöðvuðu tvo ökumenn. Annar var grunaður um ölvun við akstur og hinn var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og hafði hann áður verið sviptur ökuréttindum. Frá stöð þrjú (Kópavogur og Breiðholt) er svipaða sögu að segja. Þrír ökumenn voru stöðvaðir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Einn fyrir ítrekaðan akstur án þess að hafa nokkurn tímann tekið bílpróf. Hinir tveir voru báðir með fíkniefni á sér og annar þeirra var ekki með ökuskírteini sitt. Þá var einn ökumaður stöðvaður í Grafarvogi, sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann hafði einnig ítrekað verið sviptur ökuréttindum. Tilkynnt var um minnst tvö umferðaróhöpp. Annað á Nesjavallaleið þar sem bíl var ekið á hitaveiturör. Tveir ungir menn voru í bílnum en meiðsl þeirra eru sögð minniháttar. Hitt gerðist á Vesturlandsvegi við Skarhólabraut þar sem bíl var ekið á ljósastaur. Ekki er vitað um meiðsl ökumannsins.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Þögull sem gröfin Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Alþjóðlegur sérfræðingur til liðs við Eyjagöng Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Vegavinna á Reykjanesbraut vestan Straumsvíkur Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Sjá meira