Lífið

Anna Svava og Gylfi gengu í það heilaga og Björn Bragi stal aftur senunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virtist vera sérstaklega skemmtilegt brúðkaup úti á Nesi.
Virtist vera sérstaklega skemmtilegt brúðkaup úti á Nesi.
Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir og Gylfi Þór Valdimarsson, gengur í það heilaga á laugardagskvöldið.

Saman eiga þau og reka ísbúðina Valdísi en athöfnin og veislan fór fram í veislusal úti á Seltjarnarnesi.

Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir gaf hjónin saman við fallega athöfn.

Björn Bragi Arnarson, grínisti, var í brúðkaupinu og fékk hann mynd af sér með brúðgumanum í eldheitum kossi og virðist sem drengurinn sé kominn með ákveðið þema þegar hann er gestur í brúðkaupum eins og sjá mátti þegar Saga Garðars og Snorri Helga giftu sig um þar síðustu helgi.

Myndir úr brúðkaupinu komu inn á Instagram undir kassamerkinu#gylfan eins og sjá má hér að neðan.

 
Hættið að bjóða mér í brúðkaup! #gylfan

A post shared by Björn Bragi (@bjornbragi) on Aug 26, 2018 at 12:04pm PDT

Björg Magnúsdóttir þótti standa sig vel í nýju hlutverki.

 
#gylfan

A post shared by Sunna Petursdottir (@sungun83) on Aug 26, 2018 at 7:40am PDT

Mikið fjör var greinilega í brúðkaupinu.

Nýgift hjónin ánægð með lífið.

 
Awww.#gylfan

A post shared by Charlotta Eriksson (@thecharlotta) on Aug 25, 2018 at 4:07pm PDT


Tengdar fréttir

Björn Bragi stingur undan vinunum í stjörnubrúðkaupi

Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Björn Bragi Arnarsson var viðstaddur brúðkaup stjörnuhjónanna Sögu Garðarsdóttur og Snorra Helgasonar nú um helgina. Eins og Vísir hefur áður greint frá var þar margt um manninn og vart þverfótað fyrir íslenskum frægðarmennum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.