Stefnir miskunnsömu samverjunum fyrir fjársvik Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. ágúst 2018 08:55 Kate McClure og Johnny Bobbitt.
Johnny Bobbitt, heimilislaus maður sem var miðpunktur milljónahópfjáröflunar bandarísks pars í fyrra, hefur nú stefnt parinu fyrir fjársvik. Þetta kemur fram á vef BBC. Síðustu vikur hefur Bobbitt sakað parið um að stela af sér peningunum sem söfnuðust fyrir hann og verja þeim í allskyns lúxusvarning. Bobbitt lagði fram kæru á þriðjudag og sakar þar parið, Kate McClure og Mark D‘Amico, um fjársvik og samsæri gegn sér. Þá vill hann meina að fólkið hafi notað sjóð hans sem sinn eigin „sparigrís“.Sjá einnig: Söfnuðu milljónum fyrir góðhjartaðan heimilislausan mann Upphaf málsins má rekja til þess að Bobbitt notaði síðustu aura sína til þess að kaupa bensín á bíl McClure er hún varð eldsneytislaus á hraðbraut í New Jersey í Bandaríkjunum seint um kvöld. Í kjölfarið ákváðu McClure og D‘Amico að hrinda af stað hópfjáröflun. Ætlunin var að safna fyrir innborgun á íbúð og bíl fyrir Bobbitt, sem er fyrrverandi hermaður og hefur glímt við eiturlyfjafíkn. Söfnunin fór fram úr björtustu vonum og samtals söfnuðust yfir 400 þúsund Bandaríkjadalir, eða rétt tæpar 43 milljónir króna. Bobbitt steig þó nýlega fram og sakaði parið um að stela af sér peningnum og eytt hluta fjársins í frí, lúxusbifreið og fjárhættuspil. Þá hafi fólkið ekki efnt loforðin um íbúða- og bílakaup en lögfræðingur Bobbitt gerir ráð fyrir því að hann hafi aðeins fengið um 75 þúsund Bandaríkjadali, eða tæpar átta milljónir króna, af því sem safnaðist. Þá neitar parið að gefa út fjárhagsyfirlit eða reikninga vegna söfnunarinnar og hefur borið því fyrir sig að Bobbitt muni verja öllu fénu í eiturlyf. Gert er ráð fyrir að Bobbitt hljóti áheyrn dómara á morgun, fimmtudag. Þá hóf GoFundMe, vefsíðan sem hýsti söfnunina, rannsókn á málinu í vikunni.
Bandaríkin Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira