Haustspá Siggu Kling – Hrúturinn: Mikilvægt að þú finnir ekki sökudólga Stefán Árni Pálsson skrifar 7. september 2018 09:00
Elsku Hrúturinn minn, þvílík heppni fyrir þig það sé að koma haust, þú svífur inn í það eins og vindurinn og lokar fyrir síðasta mánuð sem hefur verið stressandi þrátt fyrir að þú hafir verið á hárréttri leið í lífinu. Það er mjög mikilvægt að þú finnir ekki sökudólga fyrir streitunni eða spennunni sem hefur íþyngt þér og það er líka rosalega gott fyrir þig að segja ég er spenntur eða spennt, í staðinn fyrir að segja ég er stressuð eða stressaður. Öllum erfiðleikum fylgir viska og þess vegna langar mig að kalla þig viskustykki, þegar haustið kallar á þig finnurðu leið út úr öllum þeim vandamálum sem hafa verið að stressa þig upp síðustu vikur og mánuði og þú lýkur því sem þú hefur frestað í lífi þínu á mettíma. Þegar þú færð hugmynd er svo mikilvægt þú framkvæmir hana strax, helst innan nokkurra mínútna, annars hverfur krafturinn til að hrinda hlutum í verk og þú festist í hjólförum sem þú hefur engan áhuga á. Að framkvæma, klára og sigra eru eiginleikar sem verður mikill kraftur yfir á þessu hausti, þú lætur ekkert skipta þig máli, hvorki veður, vind eða dass af rigningu. Það er eins og þú lokir huganaum fyrir annarra manna áreiti og siglir áfram eins og flugfiskur með sjálfstraustið í fyrsta gír, það mun alls ekki fara þér að vera í hlutlausum því skoðanir, kjarkur og áræðni gefa þér ljós til að ná takmarkinu, hvert svo sem það er. Þú færð kraftinn, hugmyndirnar og orkuna á næstu mánuðum til að skipta um gír og koma þér þangað sem þú vilt. Sum ykkar eru á fullri á fart og treysta því að ekkert komi fyrir þá og það mun koma ykkur á óvart hvað þið sjáið á þessum veg sem lífið er að gefa ykkur. Þú átt það svo sannarlega skilið að lyfta þér upp og leika þér meira.Frægir Hrútar: Hera Björk Þórhallsdóttir söngkona, Silvía Lovetank listamaður, Marta María Jónasdóttir á Smartlandi, Björgvin Halldórsson söngvari, Kári Stefánsson vísindamaður, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, Hugh Hefner, Birgitta Jónsdóttir pírati, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Ólöf Erla, grafískur hönnunarsnillingur, Elton John söngvari, Salka Sól súperdrottning, Þóra í Atlanta, Sigmar Guðmundsson sjónvarpsmaður, Berglind Pétursdóttir, Steinunn Jónsdóttir, söngkona AmabAdamA, Þórhallur Þórhallsson uppistandari, Alda í Handy pandy, naglalistakona, Vala Grand, Hjálmar Forni listamaður, Jakob Bjarnar Grétarsson, Elín Björnsdóttir, fyrirlesari og kraftaverkakona, Guðbjörn Alexander Kling fótboltamaður, Theresa Rodriguez listamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Mikil gleði á glæsilegri frumsýningu Disney Vaiana í Sambíóunum Egilshöll Lífið samstarf Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Sjá meira