South Park verður South America Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2026 19:23 Höfundar South Park segjast hafa fengið innblástur vegna hugrekkis forsvarsmanna Apple og Google. Forsvarsmenn South Park, teiknimyndaþáttanna vinsælu, hafa tilkynnt að breyta eigi nafni þáttanna. Þeir eigi nú að heita South America, í takt við breytingar Donalds Trump á nöfnum Mexíkóflóa og Ontario-vatns í Ameríkuflóa og Ameríkuvatn.
Þá hefur Trump einnig gefið til kynna að hann vilji breyta nafni ríkisins Nýja-Mexíkó yfir í Nýja-Ameríka. Sjá einnig: Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Augljóslega er um háð að ræða en í yfirlýsingu segjast þeir Trey Parker og Matt Stone hafa hlotið innblástur vegna hugrekkis og föðurlandsástar forsvarsmanna Apple og Google, sem hafa breytt áðurnefndum nöfnum á kortum sínum. Færslu um breytinguna fylgja svo þakkir til Paramount og í stað þess að segja að Paramount sé í eigu Skydance, segir að það hafi gefist upp fyrir Skydance. Bæði fyrirtækin eru í eigu David Ellison, bandamanns Trumps en samstæðan gæti bráðum orðið ein sú stærsta á sviði fjölmiðla í Bandaríkjunum, samþykki ríkisstjórn Trumps kaup hennar á Warner Bros Discovery. Paramount gerði í fyrra stærðarinnar samning við South Park. Þeir Parker og Stone, auk annarra sem að South Park koma, hafa gert mikið grín að Donald Trump á undanförnum árum. Sá hefur spilað stóra rullu í þáttum þeirra. Þeir unnu á dögunum Emmy-verðlaun fyrir þættina og notuðu tækifærið til að tileinka Trump sigurinn. Þeir birtu mynd af Trump haldandi á Emmy-verðlaunagrip, þar sem hann var með buxurnar á hælunum. Með myndinni fylgdi textinn: „Þú fékkst loksins Emmy“. Eins og frægt er hefur Trump kvartað yfir því að þættir hans, The Apprentice, hafi aldrei unnið til Emmy-verðlauna.
Bandaríkin Donald Trump Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira