Seinni bylgjan: Ætlar að gera Stjörnuna að þreföldum meisturum Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. september 2018 19:30 S2 Sport
ÍBV vann Stjörnuna í fyrsta leik liðanna í Olísdeild kvenna um helgina. Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport fóru vel yfir leikinn í þætti gærkvöldsins. Sebastian Alexandersson, einn sérfræðingur Seinni bylgjunnar, er nýr þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar og stýrði liðinu í sínum fyrsta leik á laugardaginn. Stjarnan átti fínan leik gegn sterku liði ÍBV en tapaði með tveimur mörkum, 27-25. Sandra Dís Sigurðardóttir var markahæst í liði ÍBV og fékk mikið lof frá sérfræðingunum fyrir frammistöðu sína. „Gaman að sjá hana stíga aðeins upp. Er með hörku skot, ung á leiðinni upp og heldur sér vonandi í formi og bætir við,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson. Sérfræðingarnir ræddu einnig róteringuna á ÍBV-liðinu, leikhlé Stjörnunnar og gríðarsterkt varnarafl ÍBV. „Mér fannst holningin í Stjörnunni góð. Stelpurnar eru í góðu formi og allt svona er jákvætt fyrir framhaldið,“ sagði Gunnar Berg. „Við vitum alveg hvert Basti er að stefna með þetta lið. Eftir eitt ár ætlar hann að gera þetta lið að þreföldum meisturum,“ sagði Logi Geirsson. „Já, það er ekkert verið að taka menn úr Seinni bylgjunni til þess að vera í einhverju miðjumoði að eilífu,“ tók Tómas Þór Þórðarson undir. Umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum hér að neðan.
Olís-deild kvenna Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti „Ég get ekki beðið“ Handbolti Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenski boltinn Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Sjá meira