Nú loka laxveiðiárnar hver af annari og þær lokatölur sem voru birtar í gær gefa til kynna að ágætt veiðisumar sé að verða um garð gengið.
Landssamband Veiðifélaga birtir nýjar tölur úr ánum í gær og þar af lokatölur úr nokkrum ám. Það hafa þegar verið birtar lokatölur úr Norðurá en hún endaði í 1.692 löxum á móti 1.719 löxum í fyrra. Lokatölur sem síðan hafa bæst við eru hér upptaldar með lokatölu sumarsins fyrir aftan ána og lokatölu síðasta árs í sviga þar fyrir aftan.
Haffjarðará - 1.545 laxar (1.167)
Elliðaárnar - 960 laxar (890)
Laxá í Aðaldal - 608 laxar (709)
Straumfjarðará - 349 laxar (352)
Búðardalsá - 331 lax (255)
Straumarnir - 215 laxar (277)
Laugardalsá - 198 laxar (175)
Topp fimm listinn hefur ekki breyst síðan í síðustu viku að öðru leiti en að Miðfjarðará er komin upp fyrir Þverá og Kjarrá. Eystri Rangá trónir ennþá á toppnum og Ytri er skammt á hæla hennar og það er eflaust smá keppni milli þessara tveggja á lokavikunum um hvor þeirra verður aflahærri þegar tímabilinu lýkur. Topp fimm listinn er hér að neðan en listann í heild sinni má finna á www.angling.is
1. Eystri Rangá - 3.733
2. Ytri Rangá - 3.593
3. Miðfjarðará - 2.602
4. Þverá og Kjarrá - 2.455
5. Norðurá - 1.692
Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum
