Saklaus í steininum síðan 1999 Andri Eysteinsson skrifar 16. október 2018 00:01 Horace hér á leið sinni til heimahagana, frjáls. AP/California Innocence Project
Sextugum Bandaríkjamanni, Horace Roberts, var í byrjun mánaðarins sleppt úr fangelsi eftir að hafa dvalið þar, saklaus síðan árið 1999. Ný DNA próf leiddu til handtöku tveggja manna. AP greinir frá. Roberts var sakfelldur fyrir morðið á kærustu sinni, Terry Cheek, í Riverside í Kalíforníu. Cheek hafði verið kyrkt og líki hennar komið fyrir í stöðuvatni. Roberts hafði notið aðstoðar hjálparsamtakanna California Innocence Project sem aðstoðar fanga sem telja sig sitja inni vegna glæpa sem þeir frömdu ekki. Samtökin hófu að hjálpa Roberts árið 2003 og nú loks hefur honum verið veitt frelsi að nýju. Rannsókn á erfðaefni sem fannst við rannsókn málsins þótti sýna fram á sakleysi Roberts og leiddi til handtöku á eiginmanni Cheek, Googie Harris og frænda hans Joaquin Leal. Talsmaður California Innocence Project segir að eiginmaður Cheek, Harris, hafi myrt Terry Cheek sem átti í framhjáhaldi og seinna komið viðhaldinu í ævilangt fangelsi. Í myndbandi sem California Innocence Project birti á youtube, sést Roberts henda fangelsisfötum sínum í ruslið, njóta Pepsi flösku og áður en hann flaug heim til Suður-Karólínu lýsti hann því yfir að það sem hann saknaði mest var frelsið sjálft.
Mest lesið Afsalar sér verðlaunum fyrir Sykurbað Innlent Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Innlent Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Innlent Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Innlent Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Innlent Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Innlent Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Erlent Dælan anni ekki vatnsmagni Innlent Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Innlent Fleiri fréttir Segir Írani ekki lengur geta auðgað úran Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Hittler mætir Zielenski í frönskum bæjarstjóraslag Útskrifuð fyrir fimm mánuðum en neitar að fara Vilja 25 billjónir: „Það þarf peninga til að drepa vonda kalla“ Tilbúnir til að sprengja flugbrautir á Grænlandi Farage í klandri vegna myndbanda fyrir nýnasista og öfgamenn Banksy opinberaður, enn einu sinni Fjárframlög til BBC World Service aukin vegna upplýsingaóreiðu Black Cube sakað um njósnir fyrir kosningar í Slóveníu Viðvörun gefin út á Bretlandseyjum vegna heilahimnubólgu Trump hótar umfangsmiklum árásum á olíuinnviði Íran Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Sjá meira