Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hríðfallið á nokkrum vikum, en engin merki sjást enn um það hér á landi. FÍB telur hinsvegar að þetta veiti olíufélögunum hér heima ótvírætt svigrúm til verðlækkana.
Áþekk lækkun hefur orð bæði vestanhafs og austan, en hversu mikið hefur olían lækkað? Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bilfreiðaeigenda:
„Brent-hráolían hefur lækkað um 17 prósent það sem af er mánuðinum. Á móti kemur að gengi íslensku krónunnar hefur fallið á þessu sama tímabili gagnvart bandaríkjadal.“
Runólfur segir að verðlækkana á olíu hafi gætt í Danmörku að undanförnu, sem nema um 6 til 7 íslenskum krónum á hvern lítra. Hins vegar hafa ekki sést neinar breytingar á olíuverði hér á landi ennþá.
Þó erfitt sé að spá nákvæmlega fyrir um það segir Runólfur að sérfræðingar telji jafnvel að lækkun síðustu daga kunni að vera nokkuð varanleg vegna birgðasöfnunar. „Við skulum alla vega vona að þetta sé komið til að vera,“ segir Runólfur.
Greiningaraðilar höfðu spáð að olíuverð myndi hækka á næstu misserum, ekki síst vegna þvingunaraðgerða sem til eru komnar vegna deilna Bandaríkjanna og Írans. „En svo virðist vera sem staðan á þessum stóru mörkuðum sé betri en menn áttu von á, þannig að það kemur á móti.“
Runólfur útilokar ekki að olíuverð kunni að lækka meira, ekki síst á næstu vikum þegar alla jafna er minni eftirspurn eftir olíu. Hann segist ekki skilja hvernig olíufyrirtæki hér á landi, sem telji sig vera í samkeppni, sjái ekki sóknarfæri nú þegar olíuverð hefur lækkað „til að brýna járnin,“ eins og Runólfur kemst að orði. „En þetta sýnir okkur að við búum við fákeppni líkt og áður hefur verið.“
Viðskipti innlent