Í viðtalinu var haft eftir Morricone að leikstjórinn Quentin Tarantino væri afstyrmi og myndir hans væru drasl.
Hinni níræði Morricone er löngu orðinn goðsögn fyrir tónlist sína í kvikmyndum. Hann hafði fimm sinnum verið tilnefndur til Óskarsverðlauna áður enn hann vann þau loksins fyrir tónlist í kvikmyndinni Hateful Eight, en leikstjóri hennar var einmitt fyrrnefndur Quentin Tarantino. Myndin kom út árið 2016 en áður hafði Morricone hlotið heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til kvikmyndatónlistar.
Tímaritið stóð við viðtalið í fyrstu en í dag viðurkenndi ritstjórinn, Florian Boitin, að sum ummælin í viðtalinu væru röng.

Nýjustu upplýsingar bendi þó til þess að rangt hafi verið haft eftir Morricone.
Blaðamaðurinn sem um ræðir er Marcel Anders en viðtalið var tekið í júní síðastliðnum á heimili Morricone í Róm. Viðtalið var birt í desember útgáfu tímaritsins.
Ritstjórinn tók þó ekki fram hvað það var sem var ranglega haft eftir Morricone.
Fyrir Hateful Eight hafði Morricone unnið með Tarantino að fjórum myndum, Django Unchained, Inglourius Basterds og Kill Bill-myndunum tveimur.
Árið 2013 hét Morricone því að starfa aldrei aftur með Tarantino því honum fannst hann nota tónlist sína samhengislaust í kvikmyndum leikstjórans.
Sagði Morricone að Tarantino setti tónlist í kvikmyndir sínar án þess að huga að samhengi og það væru slæm vinnubrögð.
Spurður hvernig honum líkaði Django Unchained sagðist hann ekki hrifinn því myndin væri alltof blóðug.