
„Segway Drift henta vel stuttar vegalengdir á bundnu slitlagi og á meðan þurrt er á gangstéttum, ekki ósvipað línuskautunum gömlu. Rafskautarnir ná allt að 12 km hraða á klukkustund og ganga í allt að 45 mínútur í senn á fullri hleðslu. Þeir bera allt að 100 kíló og eru því tilvalið farartæki fyrir ungt fólk sem notar almenningssamgöngur mikið eða áhugafólk um jafnvægisíþróttir.“
Ekki þarf að fara úr eigin skóm til að nota Segway Drift rafskautana og engar festingar eru á þeim. „Skautarnir virka því á sama hátt og hlaupahjól eða svifbretti, þú einfaldlega stígur ofan á skautana og leggur af stað," útskýrir Dísa.


Segway Drift rafskautarnir eru byggðir til þess að endast með afar sterkum álramma og sterkbyggðri hönnun. Hver skauti er ein heild og hafa skautarnir farið gegnum prófanir hjá verkfræðingum til þess að þola mikið álag. Hver skauti hefur gúmmístuðara að framan og aftan sem dempa högg. Á botninum eru ljós sem má kveikja á og slökkva að vild, stilla á púlsljós og láta þau skipta litum.
„Ljósin líta ekki bara vel út heldur tryggja öryggi í myrkri," segir Dísa.

Skautarnir geta farið upp brekku í allt að 10° halla við kjöraðstæður (með 75 kílóa einstakling á jöfnu, bundnu slitlagi) og eru veðurvarðir.

Þessi kynning er unnin í samstarfi við söluaðila Segway