Versta byrjun Íslandsmeistara á öldinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2018 13:30 Þetta hefur verið erfitt haust fyrir Kára Kristjánsson og félaga í ÍBV-liðinu. Vísir/Daníel
Íslands- og bikarmeistarar ÍBV töpuðu í gær fimmta deildarleik sínum á tímabilinu þegar þeir lágu á heimavelli á móti nýliðum KA í 9. umferð Olís deildar karla í handbolta. ÍBV liðið hefur nú tapað þremur deildarleikjum í röð og þremur af fimm heimaleikjum sínum í vetur. Fyrir vikið er liðið nú aðeins einu stigi frá fallsæti og liðið fyrir neðan (Fram) á leik inni. Allt þetta gerir þetta líka að verkum að þetta Eyjalið er nú það Íslandsmeistaralið á öldinni sem hefur byrjað titlvörn sína verst. ÍBV hefur aðeins náð í 6 stig af 18 mögulegum eða 33 prósent stiga í boði. Tvö lið áttu heiðurinn af verstu byrjun Íslandsmeistara á öldinni fyrir þetta tímabil en lið Hauka 2016 og lið HK 2012 náðu bæði í aðeins átta stig í fyrstu níu leikjum sínum. Eyjaliðið hefur aðeins unnið einn af fimm heimaleikjum sínum sem er kannski skrýtnasta við þennan slaka árangur Eyjaliðsins enda ÍBV-liðið alltaf erfitt heim að sækja. Leikurinn á móti KA var þriðji tapleikur Eyjamanna í röð en þeir höfðu áður tapað fyrir Val (28-30) og FH (27-28). Það fylgir þó sögunni að þessum þremur leikjum tapaði Eyjaliðið þó aðeins með fimm mörkum samanlagt. Það hefur því ekki munað miklu í þessum þremur spennandi leikjum. Hér fyrir neðan má sjá hvaða Íslandsmeistarar hafa byrjað titilvörn sína verst á þessari öld.Versta byrjun Íslandsmeistara í fyrstu níu leikjum titilvarnarinnar: ÍBV 2018 - 6 stig (2 sigurleikir, 5 tapleikir) Haukar 2016 - 8 stig (4 sigurleikir, 5 tapleikir) HK 2012 - 8 stig (3 sigurleikir, 4 tapleikir) ÍBV 2014 - 9 stig (4 sigurleikir, 4 tapleikir) Fram 2013 - 10 stig (5 sigurleikir, 4 tapleikir) Haukar 2010 - 10 stig (5 sigurleikir, 4 tapleikir) Haukar 2008 - 10 stig (5 sigurleikir, 4 tapleikir) Valur 2007 - 10 stig (4 sigurleikir, 3 tapleikir)Fæst stig liða í síðustu fimm leikjum sínum í Olís deild karla: Akureyri 1 Fram 2ÍBV 3 Grótta 3 KA 4 Valur 5 ÍR 6 FH 6 Afturelding 6 Selfoss 7 Stjarnan 8 Haukar 9Lengstu lifandi taphrinur í Olís deild karla í dag:3 tapleikir í röð ÍBV Fram2 tapleikir í röð Grótta Akureyri
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira