Robbie Fowler: Liverpool þarf að fara vinna titla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2018 09:30 Robbie Fowler og Jürgen Klopp. Vísir/Samsett/Getty
Robbie Fowler, einn mesti markaskorarinn í sögu Liverpool, segir að það sé ekki nóg fyrir félagið að stefna bara á sæti meðal fjögurra efstu því að hans mati þarf Liverpool að fara vinna titla undir stjórn Jürgen Klopp. Liverpool er eins og er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar tveimur stigum á eftir toppliði Manchester City en hvorugt liðið hefur tapað deildarleik í vetur. Sömu sögu er að segja af Chelsea í þriðja sætinu. Chelsea sló Liverpool út úr enska deildabikarnum og er í harðri baráttu í æsispennandi riðli í Meistaradeildinni. Það er einn titill því þegar farinn og liðið þarf líka að passa sig í Meistaradeildinni. Jürgen Klopp tók við sem stjóri Liverpool árið 2015 en liðið hefur enn ekki unnið titil undir hans stjórn. Úrslitaleikurinn á móti Real Madrid síðast vor var þriðji úrslitaleikurinn sem Liverpool tapar í stjóratíð Klopp. „Markmiðið er að komast eins ofarlega í töflunni og mögulegt er. Eins mikið og við tölum um þetta ótrúlega lið Liverpool sem gaman er að horfa á spila þá kemur alltaf að þeim tímapunkti þegar lið þarf að fara að vinna titla,“ sagði Robbie Fowler við The Debate á Sky Sports. „Að mínu mati er Jürgen Klopp búinn að setja saman frábært lið en eitt af stóru vandamálunum er að lið Manchester City er bara stórkostlegt. Þú getur sett saman frábært lið en nú verða menn að reyna að ná aftur City-liðinu og hanga síðan í þeim til loka,“ sagði Fowler. „Ég er ekki einn af þessum stuðningsmönnum sem fagnar því að ná fjórða sætinu. Því ættu bara stjórnarformaðurinn eða eigandinn að fagna. Frá mínum bæjardyrum séð þá væri þar verið að fagna meðalmennskunni. Ég vildi alltaf vinna titla,“ sagði Fowler. „Ég vil að fólk muni frekar eftir mér fyrir þá titla sem ég vann frekar fyrir í hvaða sæti ég endaði í deildinni. Ég skil samt af hverju félögin vilja vera með þeirra fjögurra efstu en mér finnst líka að félag eins og Liverpool eiga alltaf að vera meðal fjögurra efstu hvort sem er,“ sagði Fowler. Robbie Fowler vann fimm titla með Liverpool á sínum ferli en hann skoraði alls 183 mörk fyrir Liverpool þar af 128 þeirra í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Sjá meira