Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2026 22:08 Brighton-maðurinn Charalampos Kostoulas jafnar hér metin í 1-1 með stórglæsilegri hjólhestaspyrnu. Getty/Justin Setterfield/ Örþreyttum gestum tókst að halda einu stigi en ekki að taka með sér öll þrjú stigin þökk sé snilldartilþrifum átján ára grísks landsliðsmanns.
Nágrannarnir á suðurströndinni sættust á eitt stig hvort í lokaleik 22. umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni en Brighton & Hove Albion og Bournemouth gerðu þá 1-1 jafntefli. Bournemouth komst yfir í fyrri hálfleiknum og hélt lengi forystunni en hápunktur leiksins var stórglæsileg hjólhestaspyrna hins átján ára Grikkja Charalampos Kostoulas. Hún tryggði heimamönnum stigið. Jan Paul van Hecke vann skallaeinvígi eftir sendingu inn í teiginn. Kostoulas var með bakið í markið en tók við boltanum á bringuna til að koma sér í stöðu og skoraði síðan með stórkostlegri hjólhestaspyrnu. Stórkostlegt augnablik í annars tíðindalitlum leik. Jöfnunarmark Brighton kom á fyrstu mínútu uppbótartímans en þeim tókst ekki að tryggja sér sigur þótt tíu mínútum hefði verið bætt við. Brighton er í tólfta sæti með 30 stig, stigi á eftir Fulham en þremur stigum á undan Bournemouth sem er í fimmtánda sætinu. Umdeilt atvik varð á 28. mínútu í fyrri hálfleik. Amine Adli féll þá í teignum eftir að hafa verið á undan Bart Verbruggen markverði og komist í boltann. Paul Tierney dómari dæmdi þó ekki vítaspyrnu heldur benti hann í hina áttina og gaf Adli gult spjald fyrir leikaraskap. Sá dómur stóð þó ekki. Myndbandsdómarar skoðuðu nefnilega atvikið betur og niðurstaðan var að gula spjaldið var dregið til baka og víti dæmt. Marcus Tavernier tók vítaspyrnuna og setti boltann af öryggi hægra megin við Verbruggen, sem fór í rétt horn en réð ekki við hnitmiðaða spyrnu. Það stefndi lengi í að þetta yrði sigurmarkið en leikmenn Bournemouth voru alveg búnir á því undir lokin og tókst ekki að halda út.
Enski boltinn Brighton & Hove Albion AFC Bournemouth Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Sjá meira