Nýklipptur Fellaini togaði í hárið á Guendouzi: Klipping næst á dagskránni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2018 15:00 Mattéo Guendouzi var ekki sáttur með bellibrögð Marouane Fellaini. Vísir/Getty
Manchester United leikmaðurinn Marouane Fellaini var einu sinni með eitt myndarlegasta makkann í ensku úrvalsdeildinni en ekki lengur. Einn af „eftirmönnum“ hans á þeim lista fékk að finna fyrir smá öfund frá Belganum í vikunni. Mattéo Guendouzi er nítján ára miðjumaður Arsenal og hann býður upp á myndarlegan makka. Það eru fáir með meira hár í ensku úrvalsdeildinni í dag og það nýtti Marouane Fellaini sér í leik Manchester United og Arsenal á Old Trafford. Marouane Fellaini kom mörgum á óvart þegar hann lét klippa sig stutt í landsleikjahléi á dögunum en fram að því fór það ekki framhjá neinum þegar Belginn öflugi var inn á vellinum. Þeir Marouane Fellaini og Mattéo Guendouzi börðust um völdin á miðjunni í stórleik Manchester United og Arsenal og þá freistaðist Fellaini til að beita bellibrögðum eins og sjá má hér fyrir neðan. Unai Emery, knattspyrnustjóri Mattéo Guendouz hjá Arsenal, ræddi um þetta hártog Marouane Fellaini á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar. „Ég held að besta lausnin fyrir Mattéo sé bara að klippa hárið stutt fyrir næsta leik,“ sagði Unai Emery brosandi á blaðammafundinum. „Ef hann gerir það, eins og Fellaini gerði sjálfur, þá mun hann ekkert lenda í þessu aftur og þetta vandmál væri þá úr sögunni,“ sagði Emery. Unai Emery hefur samt ekkert rætt þessa hugmynd við Mattéo Guendouzi sjálfan. „Ég ber fulla virðingu fyrir því hvernig leikmenn vilja hafa hárið sitt,“ svaraði Emery léttur.
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira