Líkti meðferðinni á knattspyrnustjórum við Tinder Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2018 18:00 David Flitcroft. Vísir/Getty
David Flitcroft, knattspyrnustjóri enska félagsins Mansfield Town, notaði svo sannarlega nútímasamlíkingu þegar hann lýsti starfsumhverfi knattspyrnustjóra í dag. Flitcroft kvartar yfir skort á þolinmæði hjá stjórnarmönnum félaga og líkur starfsháttum þeirra eins og þeir væru að leika sér með Tinder smáforritið. Tinder er samskiptaforrit þar sem viðkomandi rennir puttanum til hægri ef þeim lýst á viðkomandi en til vinstri ef áhuginn er enginn.Mansfield Town boss David Flitcroft has compared club management to the dating app Tinder. More https://t.co/I55Wb00qlupic.twitter.com/qx3aLjtxcZ — BBC Sport (@BBCSport) December 6, 2018Flitcroft kom með þetta svar þegar hann var spurður út í starfsumhverfið hjá erkifjendunum félagsins í Notts County. Notts County liðið er núna komið með þriðja knattspyrnustjórann sinn á tímabilinu. Notts County og Mansfield Town mætast einmitt í ensku d-deildinni um næstu helgi og það á heimavelli Mansfield Town. Mansfield Town er í 6. sæti og inn í úrslitakeppninni eins og staðan er núna en lið Notts County er 16 stigum og sautján sætum neðar í fallsæti deildarinnar. „Allir vilja fá allt strax. Þú horfir á heila þáttarröð í tíu klukkutíma samfellt í stað þess að bíða í viku eftir næsta þætti,“ sagði David Flitcroft við BBC Radio í Nottingham. „Einu sinni þurftir þú að tala við stelpu en núna sveiflar þú bara puttanum til hægri eða vinstri á Tinder. Svona er lífið í daf. Það hefur enginn þolinmæði lengur,“ sagði David Flitcroft. „Það er engin virðing borin fyrir uppbyggingu eða tíma. Fólk vill fá allt núna. Þegar ég var að læra á bíl þá þurfti ég að safna fyrir honum með því að vinna í verksmiðju. Nú fær fólk bíla í jólagjöf,“ sagði Flitcroft hneykslaður.
Enski boltinn Mest lesið Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira