Sex fótboltastelpur missa af bikarleik í kvöld af því að þær fá ekki frí í vinnunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. desember 2018 15:15 Alethea Paul er leikmaður Sheffield United. Vísir/Getty
Það er tvennt ólíkt að vera karl eða kona í ensku knattspyrnunni í dag og þetta kemur vel í ljós hjá leikmönnum Sheffield United í kvöld. Sex leikmenn kvennaliðs Sheffield United missa nefnilega væntanlega af bikarleik á móti Manchester City af því að þær fá ekki frí í vinnunni. Sheffield United er hálfáhugamannalið en stelpurnar eru uppteknar í vinnu eða skóla í dag og hafa ekki tíma til að koma sér til Manchester í tíma fyrir leikinn. Sheffield United keppir í ensku b-deildinni en Manchester City er eitt besta lið Englands.Sheffield United Women without 'five or six' players for Manchester City Continental Cup tie https://t.co/LWg3cGbFAs — Telegraph Football (@TeleFootball) December 5, 2018Forráðamenn Sheffield United reyndu að seinka leiknum en Manchester City tók það ekki í mál þar sem félagið var byrjað að selja miða og hafði þegar bókað starfsmenn vallarins. Leiktíminn hafði verið ákveðinn og samþykktur af báðum liðum í upphafi tímabilsins. Leikurinn mun hefjast klukkan sjö að breskum tíma. það hefði líklega verið nóg að seinka honum til átta. Sheffield United hafði ekki samband við Manchester City fyrr en 29. nóvember síðastliðinn þegar menn þar á bæ áttuðu sig á því að liðið yrði í vandræðum með að mæta með alla sína leikmenn. Það búast allir við sigri Manchester City fyrirfram og ekki minnka sigurlíkur liðsins eftir að Sheffield United mætir með vængbrotið lið til leiks.
Enski boltinn Mest lesið Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira