Fabinho ekki á förum frá Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. desember 2018 15:30 Fabinho svekktur eftir tap Liverpool í Napoli í Meistaradeildinni á dögunum. vísir/getty
Brasilíski miðjumaðurinn Fabinho er ekki á förum frá Liverpool heldur ætlar hann að berjast fyrir stöðu sinni í byrjunarliði Jürgens Klopps. Brassinn hefur ekki byrjað nógu vel á Anfield en hann var keyptur fyrir 43,7 milljónir punda frá Mónakó í sumar og voru miklar vonir bundnar við hann. Fabinho kom ekki við sögu í fyrstu átta leikjum ensku úrvalsdeildarinnar því Klopp sagði að hann þyrfti tíma til að aðlagast en miðjumaðurinn er ánægður með sitt hlutverk á fyrsta tímabilinu á Englandi. „Mér var sagt að einhverjir fjölmiðlar hefðu skrifað ég væri óánægður og vildi fara frá Liverpool. Það sagði ég aldrei. Ég vissi að ég þyrfti að vera þolinmóður og bíða eftir mínu tækifæri. Ég er ánægður hjá Liverpool og því er engin ástæða fyrir mig að fara,“ segir Fabinho í viðtali við UOL. Fabinho er í mikilli samkeppni við James Milner, Jordan Henderson, Naby Keita og Georginio Wijnaldum um sæti í byrjunarliðinu en Brassinn hefur verið að byrja að undanförnu. „Klopp var ekkert að útskýra þetta neitt of mikið fyrir mér til að byrja með. Ég einbeitti mér bara að því að æfa og ekki að missa hausinn. Ég vissi að tækifærin myndu koma og nú þarf ég bara að fjölga leikjum,“ segir Fabinho.
Enski boltinn Mest lesið Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Fótbolti Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Sjá meira