Gefið að sök að hafa mútað blaðamönnum til að fjalla um sig í jákvæðu ljósi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 2. desember 2018 10:52 Lögregluyfirvöld í Ísrael fara fram á að forsætisráðherrahjónin Benjamin og Sara Netanyahu verði ákærð fyrir spillingu. vísir/ap
Ísraelsk lögregluyfirvöld hafa með rannsókn sinni fundið haldbærar sannanir fyrir því að Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels og Sara Netanyahu eiginkona hans hafi mútað fjarskiptafyrirtækinu Bezek Telecom Israel til að fjalla um sig í jákvæðu ljósi á fréttamiðlinum Walla sem er í eigu fyrirtækisins. Lögregluyfirvöld mælast til þess að saksóknari taki upp málið og ákæri Benjamin Netanyahu fyrir mútur, fjársvik, umboðssvik og stórfellda spillingu. Eiginkonu hans, Söru Netanyahu er einnig gefið að sök að hafa reynt að hindra framgang réttvísinnar. Í yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum í Ísrael kemur fram að lögregluna hafi lengi grunað að Netanyahu hafi á árunum 2015-2017 tekið stjórnvaldsákvarðanir í þágu ráðandi hluthafa í fjarskiptafyrirtækinu Bezek Telecom Israel, Shaul Elovitch. Netanyahu var ráðherra fjarskiptamála á þessum árum auk þess að gegna embætti forsætisráðherra landsins.Ísraelskir fjölmiðlar greina frá því í dag að í skiptum fyrir hagræðingu laga og reglugerða í þágu Elovitch hafi hann fyrirskipað blaða-og fréttamönnum á netmiðlinum Walla, sem er í eigu fyrirtæksins, að skrifa einungis fréttir og greinar sem sýni Netanyahu í jákvæðu ljósi.Afskipti Netanyahu nánast daglegt brauð Lögreglan segir þá einnig að hún hafi sannanir fyrir því að afskipti Netanyahu af fréttaflutningi hafi verið nánast daglegt brauð fyrir ritstjórn Walla og þá hafi fyrirskipanirnar verið afar óskammfeilnar. Í yfirlýsingu frá lögregluyfirvöldum í Ísrael kemur fram að lögregla hafi einnig viðað að sér nægum gögnum til að Shaul Elovitch og eiginkona hans Irisi Elovich verði ákærð fyrir mútur og spillingu. Þetta er þriðja spillingarmálið sem Netanyahu er viðriðinn en hann neitar alfarið sök.
Ísrael Mið-Austurlönd Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira