Sjáðu öll mörk Solskjær fyrir Manchester United | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2018 15:45 Ole Gunnar Solskjær kunni að klára færin. getty/john Peters
Ole Gunnar Solskjær stýrir Manchester United í fyrsta sinn á morgun þegar að liðið heimsækir Aron Einar Gunnarsson og félaga í Cardiff í síðdegisleik laugardagsins í ensku úrvalsdeildinni. Ole Gunnar var kynntur til leiks í vikunni og var léttur á fyrsta blaðamannafundi sínum í dag þar sem hann grínaðist með að hafa verið oftar en nokkur annar maður á varamannabekknum. Norski framherjinn var eins mikill ofur varamaður og þeir finnast í boltanum og fullkominn liðsmaður en aldrei á ellefu ára ferli á Old Trafford var hann með vesen þrátt fyrir að vera ekki fyrsti maður á skýrslu. Solskjær skoraði 126 mörk í 366 leikjum en hann skoraði 18 deildarmörk fyrsta tímabilið sitt eftir komuna frá Molde 1996/1997. Hann átti aldrei eftir að skora meira í deildinni en setti þó 17 í deild og 25 í heildina tímabilið 2001/2002 þegar að hann byrjaði fleiri leiki en oft áður. Norðmaðurinn glímdi við erfið meiðsli frá 2003-2006 og spilaði aðeins 24 leiki í öllum keppnum á þeim tíma en hann sneri aftur tímabilið 2007/2007 og skoraði ellefu mörk í 32 leikjum í öllum keppnum er United endurheimti Englandsmeistaratitilinn. Það vill nú þannig til að Youtube-síða Manchester United setti öll mörkin hans Ole Gunnar Solskjær saman í eitt hálftíma langt myndband fyrir tveimur mánuðum síðan. Það er eins og einhver hafi fundið á sér að launmorðinginn með barnsandlitið væri að koma aftur.
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti Fleiri fréttir Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Sjá meira