Segja uppreisn leikmanna Man United hafa þvingað fram brottrekstur Mourinho Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. desember 2018 08:30 Forsíða Daily Star. Skjámynd/Daily Star
Það gekk greinilega mikið á í herbúðum Manchester United í aðdraganda þess að knattspyrnustjórinn Jose Mourinho var rekinn frá félaginu á þriðjudaginn. Leikmenn liðsins virðast hafa vera búnir að fá sig fullsadda á ástandinu. Manchester United tapaði 3-1 á móti Liverpool á sunnudaginn og það var ljóst í augum flestra að leikmenn liðsins voru ekki að spila fyrir knattspyrnustjórann sinn. Það var hinsvegar ekki vitað hversu alvarlega staðan var orðin á bak við tjöldin á Old Trafford. Starfumhverfi Jose Mourinho virðist hafa verið mjög slæmt á mánudeginum eftir leikinn.Manchester United's players rebelled against Jose Mourinho and threatened to leave the clubhttps://t.co/aGNrdojbsv#MUFC — Express Sport (@DExpress_Sport) December 20, 2018 Nýjastu fréttir eru nefnilega að leikmenn Manchester United hafi þvingað fram brottrekstur Portúgalans með því að hóta hreinlega uppreisn. Það er ljóst á þessu að það bíður Norðmannsins Ole Gunnars Solskjær mikið og krefjandi verk að laga andann innan herbúða Manchester United og græða öll opnu sárin eftir tíma Mourinho. Solskjær heldur sinn fyrsta blaðamannafund nú í morgunsárið og það verður hann örugglega spurður spjörunum úr. Ensku blöðin Daily Star og The Express slá því bæði upp í morgun að forráðamenn Manchester United hafi staðið frammi fyrir uppreisn leikmanna ef þær losuðu þá ekki undan Jose Mourinho. Fyrirsögn Daily Star er „MUtiny“ eða „Uppreisn“ með grípandi MU vinkli en fyrirsögnin hjá The Express er „Annaðhvort fer hann eða við“ og með er mynd af Jose Mourinho. Það má sjá þessar sláandi forsíður hér fyrir neðan.
Enski boltinn Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Danir í sjokki eftir fyrsta tapið á heimavelli í tólf ár Handbolti Fleiri fréttir Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Dagar Frank hjá Tottenham taldir? Benoný skoraði sigurmark Stockport Kærkominn sigur í fyrsta deildarleik Rosenior með Chelsea Víti í súginn í fjórða jafntefli Liverpool í röð Markaskorarinn Mbeumo: „Old Trafford var ótrúlegur í dag“ Draumabyrjun hjá Carrick Alveg sama hvað Roy Keane hefur að segja Slot segir Salah enn vera mjög mikilvægan fyrir Liverpool Glasner hættir með Crystal Palace í vor og Guehi fer nú í janúar Sjá meira