Leggja til aukið frelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar
Framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins segir tillöguna góða en að misskilnings virðist gæta hjá höfundum hvítbókarinnar um takmarkanir á ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar.
Hvítbók sem ríkisstjórnin lét vinna um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Íslandi var kynnt í fjármála- og efnahagsráðuneytinu 10. desember. Á meðal þess sem kemur fram í hvítbókinni en hefur fengið litla athygli eru tillögur höfunda um lífeyrissparnað landsmanna.
Þar kemur fram að æskilegt sé að auka frelsi einstaklinga við ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar en hún er nú á forræði lífeyrissjóðanna. Í hvítbókinni segir: „Ein leið til þess að fjölga markaðsaðilum væri sú að gefa öðrum aðilum – þ.e. viðurkenndum fjárfestingarsjóðum – færi á því að taka að sér ávöxtun séreignasparnaðar.“
Gunnar Baldvinsson framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins segir að hugmyndin sé góð þótt tillagan sé ekki útfærð.
„Tillagan í hvítbókinni er reyndar ekki útfærð og ég veit ekki hvort það er misskilningur hjá höfundum bókarinnar þegar þeir tala um að sparnaðurinn hafi bara verið hjá lífeyrissjóðum. Það er hægt að fjárfesta viðbótarlífeyrissparnaði í dag meðal annars hjá bönkum og erlendum líftryggingarfélögum. Heilt yfir er ég hlynntur því að fólk ráðstafi sínum eigin sparnaði þar sem því hentar,“ segir Gunnar.
Hér á landi hefur verið heimilt í nokkurn tíma að ráðstafa séreignarsparnaði skattfrjálst inn á höfuðstól íbúðalána og verður heimildin í gildi til 30. júní á þessu ári. Gunnar segir eðlilegt að þetta verði gert varanlegt svo fólk hafi þennan valkost til frambúðar.
„Ég er hlynntur því að fólk geti notað viðbótarlífeyrissparnaðinn sinn til að fjárfesta í eigin húsnæði. Það er síðan pólitísk spurning að hversu miklu leyti það eigi að vera skattfrjálst eins og þau úrræði sem hafa verið í gangi.“
Tengdar fréttir
Aðkoma erlends banka sögð ólíkleg
Hins vegar sé möguleiki á því að stór norrænn banki sjái hag sinn í því að gera íslenskan banka að útibúi.
Leggja til að Íslandsbanki verði seldur í heild eða að hluta til erlends banka
Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra sem vann hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið telur æskilegt að stjórnvöld selji Íslandsbanka í heild eða að hluta til erlends banka.
Ríkisstjórnin vill draga úr eignarhaldi á bönkum
Bjarni Benediktsson kynnir Hvítbók um fjármálakerfið.
Leggja til miðlægan skuldagrunn og þak á fjárfestingarbankastarfsemi
Koma þarf á fót miðlægum skuldagrunni í íslenska bankakerfinu þar sem safnað er saman á einn stað öllum skuldum einstaklinga og fyrirtækja. Þá þarf að setja varnarlínu vegna umfangs fjárfestingabankastarfsemi til að sporna við því að hún verði of umfangsmikil. Þetta er á meðal tillagna starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra sem vann Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið.
Fylgifiskar krónunnar hafa kælt áhuga erlendra banka
Oft hefur verið reynt að vekja áhuga erlendra banka á fjárfestingu í íslensku bönkunum en sveiflur og óstöðugleiki sem tengjast krónunni hafa fælt þá frá. Þetta segir dósent í hagfræði. Starfshópur sem vann hvítbók um fjármálakerfið leggur til að stjórnvöld reyni að selja Íslandsbanka í heild eða að hluta til erlends banka.