Eimskip lækkar laun forstjóra Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. janúar 2019 14:44 Um 1.850 manns starfa hjá Eimskipafélagi Íslands. Fbl/anton brink
Vilhelm Már Þorsteinsson, nýr forstjóri Eimskips, verður með lægri laun en forveri hans í starfi. Launalækkun hans er hluti af aðgerðum Eimskips sem miða að „aukinni hagræðingu og skilvirkni í rekstri,“ eins og það er orðað í tilkynningu til Kauphallarinnar. Meðal annarra aðgerða sem gripið verður til er uppstokkun í skipuriti félagsins. Til að mynda mun Hilmar Pétur Valgarðsson fjármálstjóri Eimskips taka við nýju sviði, Rekstrarsviði, sem sameinar helstu rekstrareiningar félagsins tengdum skiparekstri og siglingakerfi. Þar að auki mun Egill Örn Petersen forstöðumaður á fjárhagssviði taka við starfi fjármálastjóra og leiða fjármálasvið félagsins. Ný deild, Ferla- og upplýsingatæknideild, sem áður voru tvær aðskildar deildir í skipuriti, mun heyra beint undir forstjóra.Sjá einnig: Vilhelm Már nýr forstjóri EimskipsÍ tilkynningunni segir jafnframt að samhliða þessum skipulagsbreytingum hafi Eimskip í hyggju að „hagræða“ í siglingakerfi félagsins. Strandsiglingar verða nú aðra hverja viku í stað vikulega frá Íslandi, eins og áður hefur verið tilkynnt, auk þess sem fækkað hefur verið um eitt skip í siglingakerfi félagsins í Noregi. Eimskip hefur að sama skapi í hyggju að auka þjónustu við ferskfisk- og uppsjávarviðskiptavini í Færeyjum með vikulegum siglingum frysti- og gámaskipsins Svartfoss milli Færeyja og Bretlands auk þess sem aðra hverja viku verða siglingar milli Færeyja og Hollands. „Þessar aðgerðir fela í sér breytingar á 10 stöðugildum hjá félaginu þar sem þau ýmist verða lögð niður eða taka breytingum. Flest þessara stöðugilda varða millistjórnendur hjá félaginu. Laun nýs forstjóra taka mið af þeirri áherslu stjórnar að lækka þurfi kostnað félagsins,“ segir í tilkynningunni.Hið nýja skipurit EimskipsEimskipNánar um nýtt stjórnskipulag félagsins:Rekstrarsvið er nýtt svið sem Hilmar Pétur Valgarðsson, núverandi framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs, mun stýra. Ábyrgð sviðsins nær yfir rekstrareiningar sem hafa til þessa verið undir fjármála- og rekstrarsviði annars vegar og flutningasviði hins vegar. Með þessari breytingu er allur rekstrarkostnaður skipa og flutningakerfa sameinaður á einu sviði með það að markmiði að ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri.Undir sviðið munu heyra skiparekstur, siglingakerfi, gámastýring, innkaupa- og kostnaðareftirlit, tjóna og tryggingarmál ásamt öryggis- og forvarnarmálum.Fjármálasvið sem áður hét fjármála- og rekstrarsvið ber ábyrgð á fjármálum Eimskips samstæðunnar á alþjóðavísu. Egill Örn Petersen sem starfað hefur sem forstöðumaður fjárhagsdeildar tekur við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs.Egill hóf störf hjá Eimskip árið 2003, fyrst sem sérfræðingur í hagdeild og síðar sem deildarstjóri sömu deildar. Hann tók við starfi forstöðumanns fjárhagsdeildar árið 2009. Egill lauk B.Sc. gráðu í viðskiptafræði árið 2002 frá Háskóla Íslands.Sölu- og markaðssvið sem áður hét flutningasvið, sem Matthías Matthíasson stýrir, mun sem áður leggja áherslu á sölu og framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina í áætlunarkerfi félagsins. Að auki mun markaðsdeild Eimskips færast undir sviðið.Innanlandssvið sem Guðmundur Nikulásson stýrir, mun sem áður bera ábyrgð á rekstri landflutninga, vöruhúsa og hafnarþjónustu félagsins á Íslandi.Alþjóðasvið sem Bragi Þór Marinósson stýrir, mun sem áður bera ábyrgð á rekstri félagsins erlendis að undanskildum skiparekstri.Mannauðssvið sem áður hét mannauðs- og markaðssvið, sem Elín Hjálmsdóttir stýrir, ber ábyrgð á stefnum, framkvæmd og samræmingu í mannauðsmálum og samfélagslegri ábyrgð hjá Eimskip á alþjóðavísu. Elín Hjálmsdóttir framkvæmdastjóri sviðsins mun jafnframt taka að sér hlutverk upplýsingafulltrúa félagsins.Ferla- og upplýsingatæknideild sem áður voru tvær aðskildar deildir í skipuriti verður stýrt af Hilmari Karlssyni forstöðumanni en deildin heyrir nú beint undir forstjóra.
Tengdar fréttir Vilhelm Már nýr forstjóri Eimskips Vilhelm Már Þorsteinsson hefur verið ráðinn forstjóri Eimskips. Vilhelm sem undanfarin ár hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækja og fjárfestasviðs Íslandsbanka hefur störf 24. Janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. 16. janúar 2019 20:35 Eimskip gerir breytingar á „hryggjarstykkinu“ Eimskip mun breyta siglingakerfi sínu frá og með 14. nóvember næstkomandi. 8. nóvember 2018 16:26 Átján sagt upp hjá Eimskip Liður í hagræðingaraðgerðum en félagið gaf nýverið út afkomuviðvörun. 7. nóvember 2018 16:11 Mest lesið Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Hildur fer frá Hörpu til KPMG Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Fleiri fréttir Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Sjá meira
Vilhelm Már nýr forstjóri Eimskips Vilhelm Már Þorsteinsson hefur verið ráðinn forstjóri Eimskips. Vilhelm sem undanfarin ár hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækja og fjárfestasviðs Íslandsbanka hefur störf 24. Janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip. 16. janúar 2019 20:35
Eimskip gerir breytingar á „hryggjarstykkinu“ Eimskip mun breyta siglingakerfi sínu frá og með 14. nóvember næstkomandi. 8. nóvember 2018 16:26
Átján sagt upp hjá Eimskip Liður í hagræðingaraðgerðum en félagið gaf nýverið út afkomuviðvörun. 7. nóvember 2018 16:11