Viðskipti innlent

Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum

Birgir Olgeirsson skrifar
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneyti hans leggur til að allt að 137 milljónir króna af íbúðasölufé njóti tryggingarverndar í sex mánuði ef bankinn getur ekki endurgreitt féð.
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneyti hans leggur til að allt að 137 milljónir króna af íbúðasölufé njóti tryggingarverndar í sex mánuði ef bankinn getur ekki endurgreitt féð. Vísir/Einar

Peningar sem fólk fær við sölu á eigin íbúð gætu notið mun meiri tryggingarverndar ef bankinn sem geymir þá verður ófær um að endurgreiða þá. Lagt er til að allt að ein milljón evra, eða um 137 milljónir króna, verði varin með þessum hætti í sex mánuði frá innborgun.

Þetta kemur fram í frumvarpsdrögum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem birt hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda.

Innstæðutryggingar eru þegar til hér á landi. Þær eiga að verja peninga á bankareikningum ef fjármálafyrirtæki getur ekki endurgreitt þá.

 Sérstakur tryggingarsjóður, sem bankar greiða í, kemur þá að endurgreiðslunni samkvæmt reglum laganna.

Almenna verndin nær nú yfir allt að 100 þúsund evrur á hvern innstæðueiganda hjá hverjum banka. Það eru um 13,7 milljónir króna á genginu sem notað er í greinargerð frumvarpsdraganna.

Ævisparnaður getur legið tímabundið á reikningi

Tillagan snýst um að veita hærri vernd þegar fólk hefur tímabundið óvenjulega mikið fé á bankareikningi, til dæmis eftir íbúðasölu.

Einstaklingur sem selur eigin íbúð gæti haft tugi milljóna inni á reikningi meðan hann leitar að næsta húsnæði. Stór hluti fjárins gæti þá verið umfram almenna tryggingarmarkið.

Ráðuneyti Daða Más Kristóferssonar leggur einnig til að innstæður vegna meðal annars starfsloka, skilnaðar og bótagreiðslna njóti verndar allt að 68,5 milljónum króna í sex mánuði.Anton Brink

Samkvæmt drögunum myndu innstæður vegna kaupa eða sölu á íbúðarhúsnæði til eigin nota njóta verndar allt að einni milljón evra í sex mánuði frá því að féð er lagt inn á reikning.

Ef einstaklingur legði til dæmis 40 milljónir króna af íbúðasölufé inn á reikning gæti öll sú fjárhæð fallið undir auknu verndina á þessu tímabili. Eftir sex mánuði tæki almenna tryggingarmarkið aftur við.

Viðskiptavinir þurfa ekki að kaupa trygginguna eða skrá sig sérstaklega. Verndin fylgir innstæðum sem uppfylla skilyrði laganna.

Hærri vernd eftir skilnað, starfslok og bótagreiðslur

Einnig er lagt til að innstæður vegna hjúskapar, lögskilnaðar, starfsloka, örorku og andláts njóti verndar allt að 500 þúsund evrum, eða um 68,5 milljónum króna, í sex mánuði.

Innstæðutryggingar eiga að verja peninga viðskiptavina ef banki getur ekki endurgreitt þá. Almenna verndin nær nú yfir allt að 100 þúsund evrur á mann hjá hverjum banka.Vísir/Vilhelm

Sama myndi gilda um vátryggingabætur, bætur vegna líkamstjóns af völdum refsiverðrar háttsemi og bætur vegna rangrar sakfellingar.

Þessar viðbætur myndu ekki hækka almenna tryggingarvernd alls sparifjár. Þær ættu við um peninga sem fólk fær vegna þeirra aðstæðna sem taldar eru upp í drögunum.

Vilja flýta viðbrögðum við greiðsluerfiðleikum

Þá er lagt til að Fjármálaeftirlitið fái fimm virka daga til að meta hvort banki geti endurgreitt innstæður, í stað allt að þriggja vikna nú. Fresturinn reiknast frá því að eftirlitið fær fyrst staðfestingu á að bankinn hafi ekki greitt viðskiptavini sínum.

Þetta er frestur til að ljúka matinu á greiðslugetu bankans. Hann segir ekki til um hvenær viðskiptavinurinn fær greitt úr tryggingarsjóðnum.

Bönkum yrði jafnframt gert skylt að merkja tryggingarhæfar innstæður í kerfum sínum svo sjóðurinn hefði áreiðanlegar upplýsingar þegar kæmi að endurgreiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×