Haukar fá tvítugan línumann lánaðan frá HK Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. febrúar 2019 14:27 Kristján Ottó Hjálmsson mættur til Hauka. mynd/Haukar
Olís-deildarlið Hauka bætti við sig leikmanni á lokadegi félagskipta en það fékk línumanninn unga Kristján Ottó Hjálmsson að láni frá HK sem leikur í Grill 66-deildinni. Kristján Ottó verður hjá Haukum út tímabilið og fer nú úr því að berjast um sæti í Olís-deildinni í það að berjast um sigur í Olís-deildinni en Haukar eru í öðru sæti með 21 stig, stigi á eftir toppliði Vals eftir fjórtán umferðir. Þessi tvítugi línumaður er búinn að skora 30 mörk í sjö leikjum fyrir HK í vetur en Kópavogsliðið er í fimmta sæti Grill 666-deildarinnar. Hann hefur leikið með meistaraflokki í rúm þrjú ár. Haukar eru aðeins með einn línumann á sínum snærum þar sem Jón Þorbjörn Jóhannsson hefur glímt við erfið meiðsli en hann spilaði aðeins tvo leiki fyrir áramót og var svo ekki með á móti Akureyri um síðustu helgi. Heimir Óli Heimisson hefur spilað frábærlega fyrir Haukanna og var í 28 manna HM-hópi íslenska landsliðsins en nú fær hann smá hjálp á línunni frá Kristjáni Ottó sem er byrjaður að æfa með Haukum. Haukar mæta næst Fram í Safamýri á sunnudaginn klukkan 18.00.
Olís-deild karla Mest lesið Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi Fótbolti Uppgjörið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Íslenski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Íslenski boltinn Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Enski boltinn Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sigur hjá Kolstad í fyrsta leik úrslitanna Óðinn markahæstur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann Sjá meira