Lífið

Katrín fékk af­mælis­gjöf frá eigin­manninum sem hún hélt að hún myndi aldrei fá

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á afmæli í dag.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á afmæli í dag. vísir/vilhelm
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, á afmæli í dag en hún fagnar 43 ára afmælinu með glænýjan trefil.

Frá þessu greinir hún á Twitter en þar birtir hún mynd af sér með Liverpooltrefil sem hún fékk í afmælisgjöf frá eiginmanni sínum, Gunnari Sigvaldason.

„Ástin sigrar allt,“ segir Katrín á Twitter með myndinni og greinir þar frá að Gunnar sé gríðarlega mikill Manchester United aðdáandi og að það hafi greinilega tekið á að afhenda henni Liverpooltrefilinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.