Lífið

Hjörvar hringdi í Jóa Ásbjörns með frábæra hugmynd að auglýsingu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frábært símaat.
Frábært símaat.
Hjörvar Hafliðason var gestastjórnandi í þættinum FM95BLÖ á föstudaginn og fór hann einfaldlega á kostum í þættinum.

Hjörvar hringdi meðal annars í athafnarmanninn Jóhannes Ásbjörnsson og bar fram glænýja hugmynd að auglýsingaherferð hjá pizzastaðnum Shake&Pizza.

Hugmyndin gekk út á það að tveir aðilar væru að rífast. Annar þeirra langar í pizzu og hinn í shake. Þá gengur Jói inn í herbergið og segir: „Komið bara á Shake&Pizza.“

Jóa þótti hugmyndin góð en var því miður að drífa sig á fund og vildi taka samtalið við Hjörvar síðar.

Sprenghlægilegur hrekkur sem heyra má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.