KA fór illa með níu menn Vals Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. febrúar 2019 18:51 Guðjón Pétur er kominn í gult og skoraði gegn sínum gömlu félögum vísir/anton brink
KA hafði betur gegn níu leikmönnum Vals þegar liðin mættust í Lengjubikar karla í Boganum á Akureyri. Þetta var fyrsti leikur beggja liða í Lengjubikarnum þetta árið og byrjaði hann betur fyrir Akureyringa. Guðjón Pétur Lýðsson, sem fór frá Val í KA í vetur, skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu á 38. mínútu og var staðan 1-0 í hálfeik. Á 57. mínútu leiksins fékk Ólafur Karl Finsen rautt spjald þegar hann fékk sitt seinna gula spjald og aðeins nokkrum mínútum seinna fékk Kaj Leo í Bartalsstovu beint rautt. Valsmenn voru því tveimur leikmönnum færri síðasta tæpa hálftímann. KA menn nýttu sér liðsmuninn og á 78. mínútu skoraði Ólafur Aron Pétursson eftir sendingu Almars Ormarssonar. Þorri Mar Þórisson skoraði þriðja mark KA stuttu seinna og Torfi Tímoteus Gunnarsson skoraði síðasta markið undir lok leiksins. Lokatölur 4-0 fyrir KA. Nú hafa öll liðin í riðli 3 í A-deild Lengjubikarsins leikið einn leik. Afturelding, Fjölnir og KA eru með þrjú stig en KA fer á toppinn á markatölu. Valsmenn, HK og Fram eru án stiga.
Íslenski boltinn Mest lesið Orri Steinn einn verðmætasti ungi leikmaður heims Fótbolti Galdraskot Óðins vekur athygli Handbolti Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina Íslenski boltinn „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Íslenski boltinn Hræðileg mistök hjá Elíasi í Evrópudeildinni í gærkvöldi Fótbolti Toppsætið endurheimt með átta marka stórsigri Fótbolti Hetja United meiddist ekki við það að fagna markinu Enski boltinn Stóð á boltanum áður en hún sólaði andstæðinginn upp úr skónum Fótbolti Spænska stjarnan flutt á sjúkrahús eftir slys á æfingu Fótbolti Körfuboltamennirnir sem Nablinn væri mest til í að taka tali Körfubolti Fleiri fréttir „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Haraldur hættir hjá Víkingi Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Alexander endurnýjar kynnin við Óskar Ákvörðunin hefði verið sú sama ef HK hefði haldið sæti sínu í Bestu deildinni Ákvörðun Ómars kom á óvart: „Þökkum honum fyrir ómetanlegt starf“ Víkingar krefjast refsingar vegna tjónsins en þurfa líklega að treysta á lögreglu Matthías og Kristján taka við Valsliðinu Ómar Ingi þakkar fyrir sig eftir þrjátíu ár Sjá meira