Óskarinn: Stjörnurnar hundóánægðar og stefnir í hina mestu vandræðahátíð Birgir Olgeirsson skrifar 15. febrúar 2019 11:42 Það stefnir allt í hinn mesta vandræða Óskar 24. febrúar næstkomandi. Vísir/Getty
Hópur leikara, leikstjóra og annarra í kvikmyndageiranum hafa mótmælt harðlega ákvörðun kvikmyndaakademíunnar að stytta útsendingu Óskarsverðlaunanna með því að sýna ekki í beinni útsendingu frá afhendingu verðlauna í nokkrum flokkum. Verða verðlaun fyrir kvikmyndatöku, kvikmyndaklippingu , förðun og hárgreiðslu og stuttmynd afhent á meðan auglýsingahléi stendur en þetta er gert til að stytta útsendinguna með von um að auka þannig áhorf á Óskarinn sem hefur hrunið undanfarin ár. Kvikmyndakademían vill meina að þetta sé ekki svo mikill skellur fyrir kvikmyndagerðarmennina því þakkarræðurnar verða sýndar síðar meir í beinni útsendingu. Er vonast til að það þetta stytti útsendinguna um 40 mínútur, eða niður í þrjár klukkustundir.Hópurinn sem hefur mótmælt þessari ákvörðun telur fimmtíu manns og samanstendur af nokkrum af stærstu stjörnum heimsins í dag. Þar á meðal George Clooney, Brad Pitt, Robert de Niro, Christopher Nolan, Martin Scorsese, Elizabeth Banks, Peter Dinklage, Spike Lee, Damian Chazelle, Seth Rogen, Ang Lee, Cary Joi Fukunaga og Spike Jonze. Telja stjörnurnar þessa ákvörðun kvikmyndaakademíunnar vera móðgun við stéttina.George Clooney er á meðal þeirra sem hefur mótmælt ákvörðun Óskarsakademíunnar.Vísir/GettyEinn þeirra sem verður áberandi á hátíðinni í ár er mexíkóski leikstjórinn Alfonso Cuarón en mynd hans Roma er tilnefnd til tíu Óskarsverðlauna. Myndin er tilnefnd í flokki bestu mynda og er Cuarón tilnefndur sem besti leikstjórinn en hann er einnig tilnefndur fyrir kvikmyndatöku. Hann hefur brugðist harkalega við þessar ákvörðun á Twitter. „Í kvikmyndagerðarsögunni hafa meistaraverk lifað án hljóðs, lita, sögu, leikara og tónlistar. Engin mynd hefur orðið til án kvikmyndatöku og án kvikmyndaklippingar,“ skrifaði mexíkóski leikstjórinn sem hefur áður hlotið Óskarsverðlaun fyrir myndina Gravity.In the history of CINEMA, masterpieces have existed without sound, without color, without a story, without actors and without music. No one single film has ever existed without CINEMAtography and without editing.— Alfonso Cuaron (@alfonsocuaron) February 12, 2019 Það má með sanni segja að Óskarsverðlaunin í ár sé sannkölluð vandræðahátíð. Kvikmyndakademían hefur þurft að horfa upp á minnkandi áhuga almennings undanfarin ár sem hefur orðið til þess að áhorf á hátíðina hefur hrunið. Þetta er þó nokkur viðsnúningur frá því sem áður þekktist, þegar allir höfðu áhuga og skoðun á því hver vann til verðlauna. Það skipti miklu máli fyrir myndir áður fyrr að vera tilnefndar upp á áhorf og orðin sjaldgæf sjón að vinsælustu myndir hvers árs standi uppi sem sigurvegarar á Óskarsverðlaunahátíðinni, líkt og með Forrest Gump og Titanic. Reynt var að bregðast við þessu árið 2010 með því að fjölga kvikmyndum í flokki bestu mynda úr fimm í tíu og hleypa þannig stórsmellinum Avatar inn í þann flokk. Frá þeim tíma hefur það verið í höndum akademíunnar hversu margar myndir eru tilnefndar hverju sinni, stundum níu og stundum átta, líkt og í ár.Forrest Gump var ein af vinsælustu myndum ársins 1994 en hún var valin sú besta á Óskarnum árið 1995. Það ár var hún tilnefnd ásamt Pulp Fiction, The Shawshank Redemption, Four Weedings and a Funeral og Quiz Show.Í fyrra kynnti akademían til sögunnar hugmynd um að setja á laggirnar flokk sem tileinkaður væri „Vinsælum myndum“ og auka þannig áhorfið. Þeirri hugmynd var tekið illa af fagaðilum og var hætt við hana. Það mátti þó merkja ákveðna viðhorfsbreytingu í vali á hvaða myndir voru tilnefndar sem besta myndin í ár. Þar má sjá ofurhetjumyndina Black Panther sem fór sigurför um heiminn í fyrra. Myndin þótti vel heppnuð en þó ekki beint afgerandi mun betri heldur en aðrar afar svipaðar Marvel-myndir sem hafa komið út í jöfnum straumi undanfarin ár. Bohemian Rhapsody, sem segir frá hljómsveitinni Queen og forsprakka hennar Freddie Mercury, hlaut ekki sérstaka dóma gagnrýnenda en féll í kramið hjá áhorfendum. Myndin er borin uppi af aðalleikara hennar Rami Malek og gekk afar vel í miðasölu kvikmyndahúsa. Hún hlaut tilnefningu sem besta mynd sem þykir einnig vera til marks um að akademían vilji færa sig nær áhorfendum og gera sig þannig gjaldgenga aftur hjá almenningi.Lady Gaga tók það ekki í mál að aðeins hennar og lag og Kendrick Lamar yrði flutt á hátíðinni.Vísir/GettyÞetta er ekki eina vandamálið sem akademían hefur staðið frammi fyrir. Í ár verður nefnilega enginn kynnir á hátíðinni. Var leitað til grínistans Kevin Hart en fljótlega eftir að tilkynnt var að hann yrði kynnir voru dregnir fram gamlir brandarar frá honum sem þóttu fordómafullir í garð hinsegin fólks. Hart sagði sig frá starfinu og var ákveðið að hafa engan kynni. Síðan barst það út að þeir leikarar sem fengu Óskarinn í fyrra yrðu ekki fengnir til að afhenda verðlaun í ár, líkt og hefð var fyrir. Þurfti að snúa frá þeirri ákvörðun eftir að hún hafði verið gagnrýnd harkalega. Akademían hafði einnig ákveðið að aðeins yrðu tvö þeirra laga sem tilnefnd eru til Óskarsverðlauna flutt á hátíðinni. Það voru lögin All the Stars með Kendrick Lamar og SZA og Shallow með Lady Gaga. Lady Gaga tók það ekki í mál sem varð til þess ákveðið var að öll fimm lögin sem tilnefnd eru verða flutt á hátíðinni. Óskarsverðlaunahátíðin fer fram 24. febrúar næstkomandi og stefnir í að hún verði forvitnileg fyrir margar sakir eins og rakið hefur verið hér fyrir ofan.
Bandaríkin Fréttaskýringar Óskarinn Tengdar fréttir Óskarinn: Hverjir komu á óvart, hverjir vinna og hverjir voru hunsaðir? Farið yfir tilnefningarnar til Óskarsverðlauna í ár. 23. janúar 2019 11:00 Þessi eru talin líklegust til að hreppa Óskarinn Óskarsverðlaunakapphlaupið hófst formlega í dag þegar opnað var fyrir kosningu þar sem meðlimir kvikmyndaakademíunnar í Bandaríkjunum greiða þeim atkvæða sem þeir vilja að vinni verðlauna. 12. febrúar 2019 15:45 Mest lesið Fékk Laufeyju í afmælið: „Maggi bróðir hefur alltaf verið betri en aðrir að gefa gjafir“ Lífið Hélt auganu en missti af frumsýningu eftir að hafa fengið golfkúlu í andlitið Lífið Betra sem hárbindi en tagl í Bríeti Tíska og hönnun „Lífið gefur okkur mislangan tíma og ég vil nýta minn til hins ýtrasta“ Lífið Heitasta hámhorfið í haust Lífið Helen Óttars og Rubin Pollock slá sér upp Lífið Vakti yfir sofandi sonunum vopnuð hnífi Lífið Stíflaður mjólkurkirtill reyndist ólæknandi krabbamein Lífið Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Lífið samstarf Leyndarmál Móu að hinni fullkomnu kvöldförðun Lífið Fleiri fréttir „Ef ég vil breyta heiminum þarf ég að byrja á mér sjálfri“ Fékk Laufeyju í afmælið: „Maggi bróðir hefur alltaf verið betri en aðrir að gefa gjafir“ Leyndarmál Móu að hinni fullkomnu kvöldförðun Allt jafnt fyrir lokaspurninguna og spurt var um stað Vakti yfir sofandi sonunum vopnuð hnífi Stíflaður mjólkurkirtill reyndist ólæknandi krabbamein „Lífið gefur okkur mislangan tíma og ég vil nýta minn til hins ýtrasta“ Þúsundir fögnuðu Steinu og sögulegu samstarfi Helen Óttars og Rubin Pollock slá sér upp Alma Möller, Binni Glee og Sigríður Snævarr saman í bíó Plakatarisi og uppáhalds listamaður Spielberg allur Hélt auganu en missti af frumsýningu eftir að hafa fengið golfkúlu í andlitið „Hvetjandi að sjá stelpu með sama húðlit og ég sigra“ Heitasta hámhorfið í haust Pistasíu- og döðludraumur Jönu D'Angelo er látinn Laufey gerist rithöfundur Boðberi jólanna risinn á ný „Hélt að hjartað myndi springa úr brjóstinu“ Vigdís Häsler flutt til Sveins Andra Þórarinn Arnar keypti glæsihús Tona á Arnarnesi Ómar og Eva Margrét gift og gengu frá kaupmála Ætlar ekki að verða stærstur, bara bestur Eignuðust „risastóran“ dreng Grét oft fyrstu mánuðina en gafst ekki upp Ungur karlmaður á Akureyri hefur saumað tvo þjóðbúninga á sig „Hann er góð blanda af Labrador og German Shepherd“ Hætt við atkvæðagreiðslu um þátttöku Ísraels í Eurovision Léttir að fá greininguna eftir langvarandi verki Gugga lét Gauta heyra það fyrir hæð hans Sjá meira
Óskarinn: Hverjir komu á óvart, hverjir vinna og hverjir voru hunsaðir? Farið yfir tilnefningarnar til Óskarsverðlauna í ár. 23. janúar 2019 11:00
Þessi eru talin líklegust til að hreppa Óskarinn Óskarsverðlaunakapphlaupið hófst formlega í dag þegar opnað var fyrir kosningu þar sem meðlimir kvikmyndaakademíunnar í Bandaríkjunum greiða þeim atkvæða sem þeir vilja að vinni verðlauna. 12. febrúar 2019 15:45