Viktor með glæsimark í sigri ÍA 14. febrúar 2019 20:53 Viktor bættist í leikmannahópinn á Skaganum í vetur mynd/ía
ÍA hafði betur gegn Leikni í fyrsta leik liðanna í Lengjubikar karla þennan veturinn. Leikið var í Akraneshöllinni. Viktor Jónsson, sem kom til ÍA frá Þrótti eftir síðasta tímabil, kom ÍA yfir með marki af dýrari gerðinni á 25. mínútu. Hann tók boltann á lofti og setti hann beint í netið, óverjandi fyrir Eyjólf Tómasson í Leiknismarkinu. Litlu munaði að Sævar Atli Magnússon jafnaði fyrir Leikni undir lok fyrri hálfleiks en skalli hans endaði í þverslánni. ÍA sigldi sigrinum heim í síðari hálfleik og Hörður Ingi Gunnarsson gulltryggði hann á lokamínútu venjulegs leiktíma, lokastaðan 2-0 fyrir ÍA. Í vetur var tekin upp ný regla hjá alþjóðayfirvöldum knattspyrnunnar um að þegar boltinn færi upp í þakið þegar spilað væri innanhúss þá ætti að dæma dómarakast. Samkvæmt Twittersíðu ÍA voru hvorki minna né meira en fimm slík í fyrri hálfleik leiksins. Liðin leika í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins. ÍA fer á toppinn með sigrinum, upp fyrir Stjörnuna á markatölu en Garðbæingar unnu Grindavík fyrr í vikunni. Með þeim í riðlinum eru líka Magni og Þór sem mætast í Boganum á Akureyri mánudaginn næsta.Mark Viktors Jónsson (1-0) fyrir @ia_akranes gegn @LeiknirRvkFC í Lengjubikarnum í kvöld #fotboltinetpic.twitter.com/f4OHRAiOcu— ÍATV (@ia_sjonvarp) February 14, 2019
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira