Seinni bylgjan: Þetta er vandræðalegt frá A til Ö Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 26. febrúar 2019 09:00 Rúnar var ekki sáttur þegar Stjörnumenn þurftu að endurtaka víti undir lok leiksins s2 sport
Það var heitt í hamsi í leik KA og Stjörnunnar í Olísdeild karla um helgina. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, fleygði vatni yfir ritaraborðið og sakaði starfsmenn um að hafa kallað sig hálfvita. Strákarnir í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport fóru vel yfir málið í þætti gærkvöldsins. „Í fyrsta lagi þarf náttúrulega bara KA heimilið og KA menn að ganga í skugga um að það sé leikhæf klukka í gangi. Það er vandræðalegt að bjóða upp á leik í efstu deild þar sem þarf að bíða eftir því að það sé slegið inn í tölvuna,“ sagði Logi Geirsson. „Svo má líka nefna eftirlitsdómarann. Það eiga alltaf að vera eftirlitsdómarar,“ sagði Logi en vegna manneklu var ekki eftirlitsdómari á þessum leik. „Starfsmenn á ritaraborðinu eiga náttúrulega ekkert að skipta sér af þjálfurum. Ekki á neinn hátt. Þeir stjórna ekki leiknum, þeir eru starfsmenn, dómarar eiga að sjá um öll samskipti. Þetta var bara mjög óheppilegt.“ Logi tók þó fram að hann væri ekki að taka undir hegðun Rúnars, heldur væri hann að tala um framkvæmd leiksins. „Þetta er vandræðalegt. Frá a til ö.“ „Það afsakar ekkert hegðun Rúnars,“ tók Sebastian Alexandersson undir. „Ef honum hefur verið ögrað, þá skiptir það samt engu máli, hann á að fá einhverskonar áminningu frá aganefnd.“ Alla umræðuna má sjá hér að neðan.Klippa: Seinni bylgjan: Þetta er vandræðalegt frá A til Ö
Olís-deild karla Mest lesið Glódís fagnaði titlunum í þýskum þjóðbúningi á troðfullu torgi Fótbolti Leik lokið: Fram - Vestri 1-0 | Frammarar stöðvuðu sigurgöngu Vestra Íslenski boltinn „Ég var ekki sáttur með sjálfan mig“ Körfubolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn Uppgjörið: ÍBV - KA 0-0 | Ekkert samba í sólinni Íslenski boltinn Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Handbolti Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Í beinni: Arsenal - Newcastle | Newcastle getur komist upp fyrir Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Óðinn markahæstur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Sjá meira