Lífið

39,9 fermetrar á 39,9 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Íbúð í hjarta borgarinnar.
Íbúð í hjarta borgarinnar. Myndir/fasteignaljósmyndun
Fasteignasalan Remax er með tæplega fjörutíu fermetra íbúð á söluskrá við Klapparstíg en ásett verð er 39,9 milljónir.

Húsið er nýtt og var það byggt árið 2016 en fermetraverðið er ein milljón á hvern fermetra.

Í íbúðinni er allt nýtt og eitt svefnherbergi er í eigninni. Fasteignamat eignarinnar er 16,3 milljónir en íbúðin er á besta stað í borginni, alveg í hjarta miðbæjarins.

Hér að neðan má sjá myndir af eigninni.

Fínasta útsýni af svölunum.
Stofan björt og falleg.
Fín eldhúskrókur.
Allt nýtt inni á baðherginu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.